Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1940, Side 20

Ægir - 01.01.1940, Side 20
14 Æ G I R af því aflamagni, sem kemur á land eftir að komið er fram í júní, er veitt á opna vélbáta. Þorskveiði á opna vélbáta hefir aukizt mjög og talið er, að hin siðari ár hafi hún gefizt vel og sumstaðar ágæt- lega. Alls stunduðu 41 bátur af Austfjörð- um síldveiðar fyrir Norðurlandi um sumarið. Margir þeirra hófu dragnóta- veiði að síldveiðinni lokinni. Aflaðist yfirleitt vel. Nokkrir bátar veiddu t. d. á þessum tíma fyrir um 12.000 kr. Afla sinn seldu þeir í hraðfrystihúsin á Norð- firði og Seyðisfirði og nokkuð i togara, eftir að útflutningur á ísuðum fiski hófst. Hin siðari ár hafa Austfirðingar keypt talsvert af óverkuðum fiski veiddum í Faxaflóa og við Vestmannaeyjar og flutt austur til verkunar. Hefir þetta orðið tals- verð atvinnubót. 1 nóvember var vart við örsmáa síld i Mjóafirði, Seyðisfirði og Norðfirði. Kom þorskur þar i uppivöðu á eftir síldinni. I desember varð sildarvart inni í botni Seyðisfjarðar. Var það mest hrognfull stórsíld, er veiddist. Frá Skálum gengur 9 opnir vélbátar með 27 menn. Er það 2 trillum fleira en árið á undan, en 2 árabátum færra, svo að bátatalan er sú sama. Ársafli 102 smá- lestir (95). Úr Gunnólfsvík gekk einn opinn vél- bátur með 4 mönnum. Er það 2 trillum færra en síðastl. ár. Eins og nú er komið getur Gunnólfsvík tæpast talist sérstak- ur útgerðarstaður, enda sækja bátar það- an til Bakkafjarðar. Ársafli 7 smál. (20). Úr Bakkafirði gengu 8 opnir vélbátar og 4 árabátar, með samtals 27 menn. Er það 2 trillum og 1 árabát fleira en fyrra ár. Færeyingar stunduðu þar einnig veið- ar á nokkrum bátum, en þeir flytja afla sinn heim, nema litilsháttar, sem gengur upp í viðskipti, og er það talið hér með. Eins og . stundum undanfarið, hefir Bakkafjörður verið ein aflasælasta veiði- stöðin austanlands yfir sumarmánuðina. Ársafli 188 smál. (75). Úr Vopnafirði gengu 6 opnir vélbátar, og 3 árabátar með alls 21 mann. Er það 2 trillubátum færra en árið 1938, en 2 árabátum fleira. Þar veiddist ekkert eftir ágústlok. Ársafli 57 smál. (28). Úr Borgarfirði gengu 9 opnir vélbát- ar með 24 menn, og er það 2 bátum fleira en síðastl. ár. Ársafli 66 smál. (43). Úr Seyðisfirði gengu 2 vélbátar stærri en 12 lestir, 9 minni og 5 opnir vélbátar, með samtals 54 menn. Er þetta 1 trillu- bát færra en síðastl. ár. Fimm vélbátar frá Seyðisfirði stunduðu þorskveiðar við Faxaflóa, og um sumarið voru allir stærri bátarnir á síldveiðum. Ársafli 301 smál. (346). Úr Mjóafirði gengu 7 opnir vélbátar og 6 árabátar, með samtals 20 menn. Er það 2 trillubátum og 6 árabátum fleira en næsta ár á undan. Eftir miðjan ágúst- mánuð veiddist ekkert þar. Ársafli 37 smál. (33). Úr Norðfirði gengu 8 vélbátar yfir 12 lestir, 6 minni og 21 opinn vélbátur, með samtals 97 menn. Er það 1 togara, 1 stór- um vélbát, 1 trillubát og 2 árabátum færra en fyrra ár. Sex bátar frá Nes- kaupstað stunduðu veiðar á vetrarvertíð frá verstöðvunum við Faxaflóa og auk þess veiddu 3 stærstu bátarnir sunnan lands og var afli saltaður í þá. Ársafli 419 smál. (702). Úr Breiðuvik og Karlsskála gengu 6 opnir vélbátar með 18 menn. Er það 2 trillubátum fleira en árið áður. Á þess- um slóðum er veiði mest ígripavinna manna, sem hafa landbúnað að aðalat- vinnu. Ársfli 33 smál. (12). Úr Eskifirði gengu 2 vélbátar stærri en 12 lestir og 5 minni, með samtals 28 menn.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.