Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1942, Blaðsíða 27

Ægir - 01.01.1942, Blaðsíða 27
Æ G I R 21 Sléttu, vegna þess, hve síldargengd brást á Þistilfirði um sumarið. 1 Norðlendingafjórðungi, eins og ann- ars staðar, var meiri hluti aflans seldur nýr í ísfiskkaupaskipin. Yar það raunar æði misjafnt, livernig liinar einstöku veiðistöðvar stóðu að vigi með það að koma fiskinum frá sér. Voru t. d. all- miklir erfiðleikar á þessu við Skaga- fjörð, vegna þess, að skip fengust ekki til að koma þangað inn lil að taka fisk- inn. Heldur urðu bátar t. d. frá Sauðár- króki að flytja fiskinn til Siglufjarðar, og lagðist þá á bann allmikill flutnings- kostnaður, auk þess sem fyrir kom að liann skemmdist. Á Siglufirði voru að jafnaði engin vandræði með að fá skip til fiskkaupa, þar se.m þar var mikil út- gerð og fiskur fluttur að úr nærliggjandi veiðistöðvum fyrir vestan og austan. Á Eyjafirði innan til var þetta aftur á móti öllu erfiðara, og liættu bátar oft að róa vegna þess, að skip voru ekki fáanleg til að koma þangað til fiskkaupa, og mönn- um þótti eigi svara kostnaði að verka fisk- inn á annan veg. Á Þórsböfn voru að öllum jafnaði skip til fiskkaupa um sumarið. d. Austfirðingafjórðungur. Tafla IX gefur yfirlit j'fir tölu fiskibáta og manna í Austfirðingafjórðungi í hverjum mánuði á árinu 1941. í janúar er sjór yfirleitt ekki stundað- ur fyrir Austurlandi svo neinu nemi, og svo var einnig að þessu sinni. Aftur á móti fara þeir bátar austfirzk- ir, sem veiðar stunda við Faxaflóa á vetrarvertíð, af stað þegar í byrjun jan- úar, en þeirra verður að engu getið hér, þar sem áður hefur verið á þá minnzt. Þeim bátum fer nú fjölgandi, sem takast þessa ferð á liendur. Voru á vetrarver- líðinni 15 bátar við Faxafióa frá Aust- fjörðum. Var bér um að ræða stærri bát- ana úr austfirzka vélbátaflotanum. Hvorki botnvörpuskip né línugufuskip voru nú g'erð út frá Austfirðingafjórð- ungi, eins og sjá má í töflu IX. Vertið bófst frá Hornafirði að þessu sinni fyrr en venja liefur verið, eða um mánaðamótin jan.—febrúar. Bátar alls staðar að af Austfjörðum flvtja sig þang- að um þetta leyti, þar sem aflavonin er þar mest, enda ekki gert út annars stað- ar framan af árinu. Aðkomubátar á Hornafirði voru 26 og frá eftirtöldum stöðum: Norðfirði 9, Fáskrúðsfirði 8, Eskifirði 7 og Seyðisfirði 2. Þegar kom undir vor, fóru bátar af nyrðri fjörðunum að stunda veiðar ým- ist með lóð eða dragnót. Þegar stærri bátarnir komu austur að lokinni vertíð við Faxaflóa, hófu margir þeirra veiðar með dragnót. Flestir voru bátar yfir 12 rúml. gerðir út í júlí og ág., en þá standa yfir síldveiðar. Útgerð minni þilfarsbála var liagað líkt og binna stærri. Tala þeirra var svipuð og binna stærri og út- haldstími sömuleiðis. Sumarútgerð er mikil á Austfjörðum á opnum vélbátum. Hefst útgerð þeirra ekki svo nokkru nemi fyrr en kemur fram á vor. Urðu þeir flestir að þessu sinni 131 í júní. Stunduðu þeir mest þorskveiðar með lóð og liandfæri. Á þessum bátum eru að jafnaði ekki nema 2—4 menn, oftast 3, en sökum þess, live bátarnir eru margir, veita þeir fleiri mönnum atvinnu yfir sumarmánuðina en liinir bátaflokkarnir. Árabátar eru nú orðnir sárafáir í Austfirðingafj., sem bægt er að segja að gerðir séu út að stað- aldri um lengri tíma. Eru þeir helzt gerð- ir út frá smærri veiðistöðvum í fjórð- ungnum. Tafla X gefur yfirlit yfir, livaða veiðiaðferðir voru stundaðar í Austfirðingafjórðungi á árinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.