Ægir - 01.01.1942, Blaðsíða 58
52
Æ G I R
seli Fiskifélagsins, erindreki fjórðungs-
ins og ýmsir áheyrendur.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar
á þinginu:
Tveir vitar.
„Fjórðungsþing Sunnlendingafjórðungs
skorar á forseta Fiskifélagsins að beita sér
fyrir því nú þegar, að kveikt verði nú strax
á Gerðistangavita á Vatnsleysuströnd og
Vatnsnesvita í Keflavík. Síðaslliðinn sunnudag
liafði ljósleysi á þessum vitum nærri valdið
slysförum 2ja báta í ofviðri því, sem þá geis-
aði.“
Trygging vélbáta.
„Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélagið að
koma þvi fram við ríkisstjórnina, að hún sjái
Samábyrgðinni fyrir það miklu starfsfé, að
hún geti af eigin ramleik innt af hendi
greiðslu til endurtryggjenda, án þess að þurfa
að grípa til slíkra ráða sem þeirra, að inn-
heimta ársiðgjaldið fyrirfram."
Slysatrygging sjómanna,
„Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing og Al-
þingi að koma því til leiðar, að stríðstrygg-
ingin verði sameinuð slysatryggingu sjómanna
á öllum fiskiskipum landsmanna, að undan-
skildum þeim skipum, sem eru í millilanda-
siglingum.
Dánarbætur verði hækkaðar upp i 10 þús.
krónur til ekkna og annarra aðila og síðan
hlutfallslega eftir barnafjölda. Jafnframt verði
iðgjaldið, sem útgerðinni er ætlað að greiða,
fært niður í (i kr. á bátum ofan við 5 rúmlest-
ir. Fjórðungsjdngið átelur þann drátt og
tregðu, sem hefur átt sér stað við greiðslu
dánarbóta af hálfu slysatryggingarinnar. Þá
vill og fjórðungsþingið benda á, að fullkomið
ósamræmi rikir í því fyrirkomulagi trygging-
anna, að borga út dánarbætur til ættingja ann-
arra en þeirra, sem eru á beinu framfæri hins
látna. Telur þingið, að þessu þurfi að breyta
til bóta hið bráðasta.
Ef ekki fæst lækkun á iðgjöldum ofan í 0
kr„ þá hækki dánarbætur hlutfallslega við það
upp í 15 þúsund kr. Þingið telur, að þar sem
menn eru ráðnir upp á hlut af afla, þá sé
sanngjarnt að iðgjaldið sé borgað af óskiptum
afla.“
Friðun Faxaflóa.
„Fjórðungsþingið skorar á þing og stjórn
að vinna að því, eftir því sem mögulegt er, að
Faxaflói verði friðaður fyrir alls konar botn-
vörpuveiði, og það sem allra fyrst.“
Tillaga þessi var samþ. með þorra atkv.
gegn 2.
Ljósbauja og vitamál.
„Fjórðungsþing Sunnlendingafjórðungs vill
beina þeirri spurningu til vitamálastjóra.
hvort ekki sé hægt að útvega frá Ameríku
Ijósbauju þá, sem ákveðið héfur verið að setja
út af Sandgerði og þegar hefur verið veitt fé
til á fjárlögunt, ennfremur að aukið verði
ljósmagn Garðskagavitans að miklum mun nú
strax, eða að öðrum kosti verði sett önnur
Ijósbauja út af Garðskagaflös."
Greinargerð:
Það vita allir sjómenn, sent sigla með
ströndum frá Reykjanesi að Garðskaga, hvað
nauðsynlegt er að ströndin sé vel lýst, þar
sem útgrynni er mikið og því ofl nijög slæm-
ur sjór, enda niunu skip hafa strandað á þess-
ari leið svo tugum skiptir síðan siglingar hóf-
ust. Þarna út af ströndinni liggja fiskimið
þeirra báta, sem róa við sunnanverðan Faxa-
flóa á vetrarvertíð, sem munu vera um 80—
90 bátar, og ekki sízt þeirra vegna teljum við
þetta aðkallandi nauðsynjamál. Við vitum, að
það muni vera erfiðleikar á að fá þessa vænt-
anlegu ljósbauju, þar sem ákveðið var að fá
hana frá Þýzkalandi, en það ekki hægt eins
og sakir standa. Þar sem viðskipti okkar hafa
færzt mikið til Ameríku, teljum við sjálfsagt,
að reynt sé að fá þessa bauju þaðan, sömu-
leiðis ljós'tæki til þeirra vita, sem þarf að auka
ljósmagn á. Ennfremur að sett verði ljós á þá
vita, sem þegar eru byggðir, en ekki liafa verið
lýstir ennþá. Teljum við víst, að vitasjóður
fái það miklar tekjur nú, að það beri að nota
af þeim til endurbóta og nýbyggingar vitanna.
Væntum við, að vitamálastjórinn taki þessar
sanngjörnu kröfur sjómanna til greina og
hefjist handa um framkvæmdir sem allra
fyrst, og sýnt sé i verki, að eitthvað sé gert
fyrir þá stétt manna, sem þjóðarbúskapurinn
byggist á.
Vegamál.
„Fjórðungsþingið leyfir sér hér með að
skora á stjórn vegamálanna að sjá um, að veg-