Ægir - 01.01.1942, Blaðsíða 55
Æ G I R
49
Ljósmagn hans er aðeins 200 H.K. og
Ijósmálið 9.5 sm.
Grenjcinesvitinn er að útliti og gerð
eins og vitinn á Kálfsliamarsnesi við
Húnaflóa, sem reistur var árið áður. Er
iionum aðallega ætlað að lýsa vfir hið
iiættulega svæði við Grenjanesið og leið-
ina til Þórshafnar og einnig Þistilfjörð-
inn, að austanverðu út með Langanes-
inu. Er hann fullgerður að öðru leyti en
því, að í hann vantar ljóstækin.
Þormóðssker er syðst og vestast í
skerjaklasa þeim, sem liggur fyrir Mýr-
um. Er skerið um 200 m á lengd, en tæp-
ir 100 m á br. Það er um 11 m yfir sjáv-
armál (flóð), þar se,m það er liæst. Vit-
inn á skerinu er um 20 m á liæð. Lokið
var við að steypa vitann um haustið, en
lengur var eigi hægt að vinna þar vegna
veðurs. Mun verða lokið endanlega við
hann á næsta snmri.
12. Landhelgisgæzlan
og björgunarstarfsemin.
Á árinu 1941 var í fvrsta skipti sam-
einuð landhelgisgæzlan og' björgunar-
starfsemin, og tók Skipaútgerð ríkisins
að sér að sjá um rekstur björgunarskút-
unnar „Sæbjörg“, með því skilyrði, að
Slysavarnarfélagið fengi umráð yfir
skipinu til björgunarstarfsemi.
Vs. „Ægir“ var mikið við björgunai’-
störf á árinu. Voru það bæði innlend og
erlend skip, sem hann ýmist aðstoðaði á
liafi úti eða er þau liöfðu strandað. Dró
„Ægir“ 2 erlenda togara, er strandað
höfðu, á flot aftur, auk stærri skipa. A
vetrarvertíðinni var „Ægir“ við Vest-
mannaeyjar og Suðurland, og aðstoðaði
fiskibátaflotann á þcim slóðum.
Vs. „Óðinn“ var við Suð-Vesturland á
vetrarvertíð. Veitti hann 12 skipum og
bátum, aðallega innlendum, aðstoð, ým-
ist með því að draga þau til lands vegna
vélabilana eða draga þau út af strand-
slað. Einnig var „Óðinn“ við Austurland
og vann þar að eyðingu rektundurdufla,
en. óhemju mikið var af þeim, sérstak-
lega um iiauslið. Auk þess var „Óðinn“
við ýmis konar björgunarstörf á árinu.
Tók hann 3 háta fvrir landlielgisbrot,
einn með botnvörpu, en hina með drag-
nót, alla við Faxaflóa og Suð-Vesturland.
Björgunarskútan „Sæbjörg“ var bæði
xið björgunarstörf og landhelgisgæzlu á
árinu. Aðstoðaði liún um 20 báta á ár-
inu, aðallega við Suð-Veslurland og í
Faxaflóa á vetrarvertíð. Oftast voru bát-
arnir með bilaðar vélar og' því ósjálf-
Ijjarga. Auk þess aðsloðaði bún við leitir
að skipum, og sömuleiðis bæði „Óðinn“
og „Ægir“. Um sumarið var „Sæbjörg“
við Norðurland við eyðingu rektundur-
dufla.
Landbelgisbrot voru með minnsta
móti á árinu. Eins og tafla XXVIII ber
Talla XXVIII. Skrá yfir skip, sektuð fyrir ólöglegar veiðar eða ólöglegan
umbúnað v'eiðarfæra í íslenzkri landhelgi 1941.
Varðskip Tekið Umd. tala Nafn skips Heimili Nafn skipstjóra Ilvar tekið Sekt og fleira
Óðinn 17.jan. EA 7 v/b J akob AkurejT’i Halldór Magnúss. Við Kirkjuvog 29 500 kr. Ekkiúfr.
Kærður 2. júni af einstakl. úr landi SU518 - Reynir Eskifirði Jens P. Jensen — Vopnafjörð 7 500 —