Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 5

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 5
Æ G I R 219 Jón sígur brátt á níunda tuginn. Hann er nættur að skera í nefið fyrir náungann, og ekki keraur hann lengur ló á fat. Enn potar hann sér ])ó kringum húsið, tekur sér sess í óollanum sínum og rær fram í gráðið. — Stunduin hlær þar við honum sól af suður- himni. „Það er alltaf munur að vita af henni, blessaðri,” segir liann og starir út í húmið óendanlegt. IJegar ég var í Flensborg í Hafnarfirði, sá ek ósjaldan, að blindur maður var leiddur vestur eða suður Strandgötuna. Hann var klæddur vinnugalla og vann sýnilega niðri á bryggju eða þar í nánd. Ég heyrði flesta nefna hann Dóra eða Dóra blinda. Öllum Ví<r mjög hlýtt til hans, er á hann minntust. Eitt vorið, að námi loknu, fór ég í eyrar- vinnu i Hafnarfirði. Þá kvnntist ég Dóra ei- Htið og sá nánar lil verka hans. — Halldór keitir hann og er Brynjólfsson. Til Hafnar- tjarðar kom hann frá Vestmannaeyjum, þar kígu bernskusporin hans. Oft minntist hann íl Eyjarnar sínar og það með slíkri hlýju, að nianni duldist ekki, að þar hafði hann skynj- nÖ fólkið og umhverfið alsjáandi. Hann kafði það og til að minnast á sjóferðirnar í Eyju.m og af Austfjörðum, því að róið hafði nann margar vertíðir, þótt blindur væri. Hegar Halldór var á 13. ári, missti hann s.iónina á öðru auga, en tvítugur varð hann alblindur. Snemma hafði hann hug á því að komast á sjóinn sem aðrir piltar í Eyjum, °g það tókst honum, þótt hann væri miður s>n um sjón. Leiðir margra ungra Vest- aiannaeyinga lágu þá til Austfjarða á sumr- 11 ln- Þegar Halldór hafði spurnir af þvi, að strákur einn, sem hann þekkti, hefði fengið 45 krónur i kaup á mánuði, greip hann löng- Un til þess að komast austur og revna sig nai‘- — Lóðir þekktust þá ekki enn í Vest- Hiannaeyjum, og var Halldór því óvanur beitingu. En lil þess að hann kæmi ekki austur ókunnur öllum handtökum, tók hann 'S|g «1, fékk sér nokkra króka, hnýtti á þá °g festi taumunum á spýtu. Síðan skar hann gulrófu niður í eins konar beituteninga og •efði sig að koma þeim á krókana. Vorið Halldór linjnjól/sson. næsta, eftir að hann hafði æft sig á þennan hátt við beitinguna, réðst hann austur á Mjóafjörð til Gunnars Jónssonar í Höfn. Sjómennskan evstra Iét honum vel; fór hann alls 13 sumur austur og reri ýmist frá Mjóa- firði, Norðfirði eða Þórshöfn. Alltaf þurfti hann að hafa kunnugan ineð sér austur, og' jafnan þurfti hann að eiga einhvern að með að fvlgja sér til skips. A vetrum reri hann úr Eyjum. Er ýmsum þar eystra enn í minni, þegar Halldór var að fara út í vertíðarskip Eyjamanna. Slikt einsdæmi þótti það, að blindur maður reri þaðan. Þegar Halldór var 48 ára, fluttist hann til Hafnarfjarðar og vann þar á eyrinni i 20 ár. Það sá ég, þessi skipti sem ég vann með hon- um, að allir voru ósviknir á að hafa slíkan mann í vinnu. Hann var stöðugt að og svo vanur orðinn þessari vinnu, að það var eins og hvert verk léki í hendi hans. Halldór er nú hættur á eyrinni, enda hefur hann senn tvo um sjötugt. Hann mun þó enn jafnléttur og kátur sem fyrr. Sú gjöf varð honum mikil í upphafi og hefur reynzt honum hinn tryggasti fylginautur. Það er ætlan min, að þetta séu seinustu landarnir, sem árum saman sæki sjó, án þess að sjá, að við þeim brosi sól yfir báru. L. Ií.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.