Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 25

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 25
Æ G I R 239 Hermann S. Jónsson: Hinzta kveájan. Hinn 29. sept. 1943 andáðist í Flat- ey á Breiðafirði Hermann Jónsson skipstjóri. Hann var fæddur í Flatey á Breiðafirði 2. júlí 1856 og var því rösklega 87 ára, er hann lézt. Hann var Breiðfirðingur að ætt, og í Flatey ól hann allan sinn aldur. Jón, faðir Hermanns, hafði auknefnið formað- ur. Var hann lista sjómaður, svo að orð fór af um allan Breiðafjörð. — Kippti Hermanni ósvikið í kyn til' föður sins og mun í sumu ekki hafa verið eftirbátur hans á sjónum, en þar háði hann lengst af ævinnar ýmsa leiki í blíðu og stríðu. •— Hermann var greindur ágætlega og margfróður. Hann studdi jafnan mál sjómanna svo sem hann mátti. Málefni Slysa- varnafélagsins voru honum mjög hjartfólgin, og kom það á ýmsan liátt í ljós í átthögum hans. — Grein þá, er hér fer á eftir, rilaði Hennann 86 ára gamall, og var hún flutt á skemmtun í slysavarnadeildinni í Flatey s. 1. vetur. Hún er hin hinzta kveðja Hermanns til íslenzkra sjó- manna. Gamalt máltæki segir: Svo er margt sinn- sem skinnið. Vissulega á það við um okkur Islendinga, jafnvel öðrum þjóðum l'remur. IJað er svo fátt, sem við getum orðið ein- huga um, og þarf ég ekki að rekja það né i'ökstyðja, því að það er reyndar öllum IvUnnugt. Eitt mál er það þó, sein ég held að allir séu samhuga og sammála um, lærðir og' leikir, æðri og lægri. Það er slysavörnin — Shjsavarnafélagið. Og hvað ber til þess? IJað er hið hættulega strið, sem allur þorri Islendinga hefur þreytt ár eftir ár og öld eftir (")ld við hin grimniu öfl ægis, við að reyna að hrifsa úr greipum hans lífsfram- hamingju fyrir land og lýð, en líka oft orðið að gjalda sorglegt afhroð sinna djarfhuga sona. I>að eru j>essar mannfórnir, sem Slysa- variiafélagið vill koma í veg fyrir eða minnka. Því hefur þegar orðið mikið ágengt, og með vaxandi tækni í lofti, á landi og á sjó treysti ég því, að það eigi mikla glæsi- braut fram undan. Það er um þetta mál, sem við sameinumst öll í anda og sannleika, og því erum við hér saman komin í dag að leggja lítinn skerf til þessa góða og göfuga málefnis. Mér er gefin sýn. Ég sé í anda aldurhnigna foreldra, konu og börn grátin gleðitárum. Fyrir atheina Slysavarnafélagsins hefur ást- vini þess og fyrirvinnu verið bjargað úr heljargreipum. Hugsið ykkur þakkargjörð þessa fólks, Hún yljar hjarta mínu og glæðir vou mína uin nýja sigra fyrir félagið. Ég sé líka harmþrungnu ekkjuna, ellimæddu foreldrana og munaðarlausu börnin ör- magna af sorg yfir missi hins ástkæra son- ar, eiginmanns og föður. Hve óumræðanlega

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.