Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 12

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 12
220 Æ G I R Botnvörpungurinn Coot, eign Fiskveiðahlutafélags Faxaflóa. Hann var fgrsli togarinn, sem Islendingar eignnðusl. Indriði fór frá Dover á aðfangadag jóla áleiðis til London, og til Leith var hann koininn fyrir 1. janúar. Hittiist þeir þre- menningarnir á þeini stað og degi, er tiltekið hafði verið. Var nii ráðagerðin um kaup á kútter fyrir Útgerðarfélagið við Hafnarfjörð úr sögunni, en í þess stað var efst á baugi að festa kaup á togara. Höfðu þeir Einar og Björn átt tal um þetta áform við Arnbjörn Ólafsson frá Keflavik, en hann var þá einnig í Englandi, og Halldór nokkurn Sigurðsson, ættaðan frá Akranesi. Hafði Halldór upphaf- lega verið á Vídalínstogurunum, en síðar flutzt til Englands og' orðið skipstjóri á tog- ara frá Aberdeen, og þar var hann húsettur. Höfðu þeir Halldór og Arnbjörn bent Ein- ari og Birni á tvo togara, er voru til sölu í Aberdeen. Höfðu skip þessi verið í eigu fé- lags, sem var orðið gjaldþrota, er hér var komið sögu. Var nú ráðið að festa kaup á öðru skipinu, og hét það Coot, sem fyrir valinu varð. Segir Indriði, að sér hafi j)ó Jit- izt verr á ])að, en ákvarðanir Arnbjörns og Halldórs hafi þó orðið að ráða í þessum efnum. Skipið kostaði 45 þús. kr., og var það borgað út. Aðdragandinn að þessum togarakaupum hafði hyrjað haustið áður. Var þá boðað til fundar i Reykjavík (28. sept. 1904) og stofnað hlutafélag, sem nefnt var Fiskiveiða- hlutafélag Faxaflóa. Hlutverk þessa félags var að gera út á þorskveiðar með botnvörpu- skipi, Stofnféð átti minnst að vera 25 þús. kr. í 500 kr. hlutum, og skyldi það greiðast fyrir 1. des. 1904. Ábyrgð var takmörkuð. í stjórn félasgins voru kosnir August Flygen- í ing, formaður, Björn Kristjánsson alþm. og Arnbjörn Ólafsson. Þess var getið á stofn- fundinum, að félagið ætlaði sér að sjá liöf- uðstaðnuin fyrir soðmeti á öllum árstíðum. August Flygenring mun einhverra hluta vegna hafa dregið sig skjótt út úr þessum félagsskap, en í hans stað fengu þeir Arn- björn og Björn Einar Þorgilsson í lið með sér. Og á veguiri þessa félags voru þeir nú staddir í Englandi til þess að lcaupa Coot. Hlutaféð var 35 þús. kr„ en hluthafarnir voru: Einar Þorgilsson, Björn Kristjánsson, Arnbjörn Ólafsson, Guðm. Þórðarson, siðar í Gerðum, Indriði Goltsveinsson og Þórð- ur í Glasgow. Þýzkur kaupmaður, Holler að naí'ni, átli nokkuð af hlutum Björns Krist- jánssonar, en Björn hafði umboð fvrir hann hér á landi. Þorvaldur Þorvaldsson átti og nokkuð af hlutum Þórðar í Glasgow. Hluta- l'éð var aukið um 10 þús. kr. frá þeirri lág- marksupphæð, sem ákveðin hafði verið, er félagið var stofnað um haustið. Varð félagið

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.