Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 36

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 36
250 Æ G I R miðii allar kaupgreiðslur til lands og sjávar, hæði hjá riki og einstaklingum, við vísitölu, sem reiknist lit eftir verðlagi og magni út- flutningsafurðanna. Felur fundurinn stjórn F. f Ú. að fvlgja ])essu eflir við rétta aðila. Arerði útgerðarreksturinn til muna óhag- stæðari, en orðið var, vegna lækkunar á af- urðaverðinu eða hækkunar á útgerðarkostn- aði, þá felur fundurinn stjórninni að l)oða alla útvegsmenn á landinu til fundar í Rvík, til þess að taka ákvarðanir um, hvað gera skuli til úrbóta fyrir útveginn. Um hlutaráðningn sjómanna. Almennur l'undur útvegsmanna haldinn í Rvik 29. nóv. til 2. des. 1944 vekur athygli á, að jafnframt því, sem hagur smáútvegs- manna hefur rýrnað, vegna vaxandi dýrtíð- ar í landinu, hafa kjör hlutaráðinna sjó- manna versnað að sama skapi, miðað við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Þar sem ekki eru möguleikar til þess að bæta kjör hlutasjómanna á kostnað útvegs- manna, skorar fundurinn á hlutasjómenn, hvar sem er á landinu, að beita sér fyrir því, að hagsmunafélög þeirra styðji kröfur út- vegsmanna um hækkun afurðaverðsins og —■ eða lækkun á tilkostnaði til hagsbóta fvrir báða aðila. Um Fiskveiðasjóð. Fundurinn felur stjórninni að vinna að því, að öll stofnlán til útvegsins verði sam- einuð á einum stað, í Fiskveiðasjóði íslands, enda verði sjóðnum ávallt séð fyrir nægilegu og ódýru rekstrarfé. Stofnlán til nýbygginga útvegsins verði samanlagt, fyrsta veðréttarlán og áhættulán, allt að 75% af kostnaðarverði. Um Útvcgsbankan n. Fundurinn skorar á Alþingi og rikisstjórn að levfa stjórn L. í. Ú. að tilnefna tvo menn í bankaráð Útvegsbanka íslands hf. Almannatryggingar. Aðalfundur L. í. Ú. felur stjórn sinni að fylgjast vel með væntanlegri lagasetningu um almennar tryggingar samkv. stefnuskrá ríkisst jórnarinnar. Væntir fundurinn þess, að með þeirri laga- setningu verði útveginum ekki íþyrtgt með nýjum kvöðum, en létt af útvegsmönnum öllum beinum fjárhagsskyldum, sem nú hvíla á þeim vegna veikinda eða slysa skip- verja. Um sameiginleg innkanp. Almennur fundur í Landssambandi ísl. út- vegsmanna 29. nóv. til 2. des. 1944 leggur til, að L. í. Ú. beiti sér fyrir sameiginlegum inn- kaupum til félagsmanna á: a. hvers konar veiðarfærum, b. olíum, c. salti, d. fiskumbúðum. Sömuleiðis leggur fundurinn til, að L. í. Ú. beili sér fyrir, að vextir á útgerðarlánum lækki allverulega. Um orlofslögin. Almennur fundur útvegshianna, haldinn í Itvík 29. nóv. til 2. des. 1944, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að breyta orlofslögunum i þá átt, að þau nái ekki til hlutaráðinna sjó- manna né heldur þeirra, sem að einhverju leyti taka laun sín með hlut eða hundraðs- hluta al' afla skips. Enda er ætlazt til, að sjó- menn beri það mikið úr býtum með afla- hlutum sinum, að þeir hafi efni á að taka sér hæfilegl frí á ári hverju. Um lög um atvinnu við siglingar. Aðalfundur í Landssambandi ísl. útvegs- manna, haldinn í Kaupþingssalnum í Rvik 2. des. 1944, lýsir eindregnu fylgi sinu við frumvarp til laga, sem nú liggur fyrir Al- þingi um breytingu á lögum nr. 104 frá 23. júní 1936, um atvinnu við siglingar á Is- lenzkum skipum, og skorar á Alþingi að samþykkja frumvarpið óbreytt.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.