Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 6

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 6
220 Æ G I R Lúðvík Kristjánsson: Þættir úr sögu íslenzkrar togaraútgeréar. Þar sem frá var horfiá. Vorið 1898 fengu hin nýju botovörpulög, er samþykkt voru á alþingi sumarið 1897, staðfestingu. Þessi nýju lög fólu í sér mögu- leika til togaraútgerðar af íslendinga hálfu, því að upp i þau var tekið það mikilsverða nýmæli, að „innlendum botnvörpuskipum skuli heimilt að leita til lands til að afferma afla og til að afla sér vatns og annarra nauð- synja, hvernig sem á stendur, en veiðarfæri skulu þá höfð í búlka.“ Um þetta atriði i lögunum urðu heitar um- ræður á þingi, og fóru andstæðingar togara- útgerðar ekki dult með það, að þetta ákvæði mundi hafa það í för með sér, að „asninn yrði leiddur í herbúðirnar“, togaraútgerð byrjaði hér í stórum stíl, en bátaútvegurinn yrði knésettur. Ekki var örgrant um, að jafnvel sumir þeir, er fylgjandi voru því að Islendingar tækju upp þessa veiðiaðferð, ör- væntu í sambandi við þessa rýmkun á tog- aralögunum. Þeir óltuðust, að langt yrði i land þar til íslendingar sjálfir hefðu bol- magn til að eignast jafndýr skip og togarar voru, og erlendir útgerðarmenn mundu því einir hafa hagnað af þessari ráðabreytni, því að þeir mundu sjálfir efna hér til togaraút- gerðar i skjóli leppmennsku. Þessum rökum var og mjög haldið á loft af andstæðingum togaraútgerðar. Hvað sem segja má um rök og gagnrök i þessu máli, þá er það aug'ljóst, að fyrr en þessi brevting var gerð á togaralögunum, var með öllu útilokað, að útgerð togara gæti haf- izt hér. Þótt nokkur hætta gæti verið sam- fara því, að útlendingar efndu hér til togara- útgerðar, voru þó enn meiri líkur fvrir þvi, að það gæti orðið íslendingum gagnsamt á ýmsa lund, ef eigi tækist því verr til. Sú skoðun virðist einnig víða hafa átt ítök um þessar mundir, að bið yrði á því að stofnað yrði hér til logaraútgerðar, hvort heldur væri af erlendum eða innlendum mönnurn. Þeir, sem slíku héldu fram, færðu þau rök fyrir, að erlendri togaraútgerð væri þannig háttað, að hún mundi ekkert í vinna við að hafa hér bækistöðvar og á íslendinga sjálfa þýddi naumast að minnast í þessu sambandi, því að þá brysti með öllu fjármagn til þess að ráðast í slíka hluti. Þannig var í höfuðdráttum afstaða íslend- inga til botnvörpulaganna og þá um leið tog- araútgerðar. Frá því um vorið 1898, að lögin voru staðfest og fram til áramóta skeði ekk- ert, er gæti gefið hugboð um, hvað verða mundi í þessum efnum á næstunni. Menn héldu uppteknum hætti með að kaupa fisk at brezkum togaramönnum, og var whiskv al- mennastur gjaldmiðill í þeim viðskiptum, minnsta kosti i Faxaflóa. — Lögregluvaldið reyndi að koma í veg fyrir slika höndlun, en varð lítið ágengt, enda var úr vöndu að ráða. Menn höfðu það til að gera sér dælla við yf' irvöldin, þegar þau reyndu að halda upp1 lögum og rétti í þessum efnum en ella. Mun það einkum hafa valdið, að þeiv, sem við- skipti þessi stunduðu af íslendinga hálfn,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.