Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 42

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 42
256 Æ G I R Vélbáturinn Bragi G. K. 415. Fyrir skönimu kom hingað til lands nýtt i'iskiskip, er smíðað hefnr verið fyrir ís- lendinga vestur i Anieríku. Skip þetta heitir Bragi og hefnr einkennisstafina G. Iv. 415. Eigendur þess eru Valdimar Björnsson í Keflavík og Hallgríiuur Oddsson í Reykja- vík. Bragi er smíðaður í Brooklyn, New York, eftir íslenzkum teikningum. — Hann er 90 riiin]. samkvæmt íslenzkum mælingum. í honum er fjórgengisvél — Atlas Iinperial — 250 hestöfl, og fer hún 350 snúninga á min- útu. Ljósavél er 16 ha. Lister. Dekkvinda er knúin með rafmagni, og „trawl“-búnaður allur er mjög vandaður og fullkominn. í skipinu er ágæt miðunarstöð, bergmáls- dýptarmælir og talstöð. Tveir björgunar- bátar fylgja skipinu, og er annar þeirra með vél. íslendingar munu ekki fyrr bafa látið siníða fiskiskip í Ameríku, og sennilega hef- ur jafnlitlu skipi aldrei verið siglt milli Am- eríku og Islands á þessum tima árs. Ferðin Irá Halifax til Reykjavikur tók 13% sólar- hring. A skipinu voru þessir menn: Magnús Höskuldsson skipstjóri, Valdimar Björns- son, Markús Sigurjónsson stýrim., Tomas- son 1. vélstj. (norskur), Guðmundur Gísla- son 2. vélstjóri, Halldór Laxdal loftskeyta- maður, Eyjólfur Eiríksson matsveinn og Haraldur Ársælsson háseti. Skip i smíðum. I skipasmíðastöð Ársæls Sveinssonar i \restmannaeyjum er unnið að smíði 60 rúml- skips, og er gert ráð fyrir, að það hlaupi af stokkum í byrjun árs 1945. Þá er og unnið þar að stækkun skips. Það strandaði 1. marz 1944 á Kálfafellsf jöru, en 5. júlí siðastl. tóksl að ná því á flot. Skip þetta heitir Annei og er frá Frederikshavn. — Þegar lokið verður við að stækka það, en það mun verða snemma á árinu 1945, mun það verða um 70 rúml. að stærð. — Júlíus Nyborg í Hafnar- firði er nýbyrjaður á skipi, en ekki er oss kunnugt um, hversu stórt það á að vera. Á árinu, sem nú er senn liðið, voru smíðuð 6 fiskiskip hér á landi, en eitt keypt erlendis frá.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.