Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Síða 10

Ægir - 01.11.1944, Síða 10
224 Æ G I R .lón Vídalín knnsúll. nesi og í Hafnarfirði. í Hafnarfirði keypti það Akurgerðislóðina og yerzlunarfasteign Magnúsar Th. Blöndahl. Útgerðinni var hag- að þannig, að kolaveiðar og þorskveiðar voru sameinaðar. Sigldu skipin til skiptis með kolann til Englands, en þorskfiskurinn var verkaður í Hafnarfirði og á Akranesi. Flutningaskipin tvö sáu um aðdrætti til skipanna og fluttu á milli salt og saltfisk. Skipstjórar voru allir erlendir, ýmist dansk- ir eða enskir. Nokkrir íslendingar voru á skipum þessum, og voru þeir aðallega hafðir við flatningu. Ivaup var hið sama og á Wards útgerðinni í Hafnarfirði. Aðalframkvæmda- stjóri útgerðarinnar var Mundahl verkfræð- ingur. Skipin byrjuðu flest veiðar siðari hluta maímánaðar og héldu áfram til 1. nóv- einber nema tvö. Hætti annað þeirra 3. okt., en hitl strandaði í Grindavík þann sama dag. Útgerð þessi gekk í flesta staði illa og bar margt til. Talið var, að félagið hefði tapað á henni 200—300 þús. kr. í byrjun árs 1900 var farið að selja suma togarana og um sumarið var félagið leyst upp. Orsakir þess, að útgerð þessi gekk jafn- hörmulega, voru af ýmsum toga spunnar. Aðstaða öll til út- og uppskipunar var erfið mjög, en þó var það enn þyngra á metum, að útgerðin skyldi hafa fleiri en eina bæki- stöð. Hlaut að verða að því margs konar liagi í simalausu landi. í hvert skipti, sem skipin komu inn, urðu þau að koma við á báðum stöðunum, Akranesi og Hafnarfirði, og oft einnig í Reykjavík. Varð að þessu mikið tímatap. Skipstjórarnir voru flestir ó- kunnir hér við land, enda fór veiði þeirra eftir því. íslenzku áhafnirnar voru ærið mis- jafnar, því að flestir sjómenn voru farnir til þilskipaveiða, þegar togararnir komu. Voru fslendingar að ganga af þeim annað veifið, svo að lá við mannahraki. Mundahl verk- fræðingur, sem útgerðinni átti að stjórna, var ókunnur hér öllum staðháttum og venj- um og virðist það hafa haft sín áhrif. Margt bendir og til þess, að „verkfræðingurinn í honum“ hafi leitt hann út í ævintýri, sem hlutu að koma útgerðinni í koll. Þann 7. marz um veturinn strandaði tog- arinn Richard Simpson H 91 á Meðallands- fjörum. Var þetta nýtt skip, stórt og vandað, og hafði það lent þarna í fyrstu ferð sinni hingað til lands. ísafoldarfélagið keypti skip þetta á strandstaðnum, og réðst Mundahl í að reyna að ná því á flot. Þrettán menn úr Vestmannaeyjuni og 12 úr Reykjavík voru ráðnir til þess að vinna á strandstaðnum. Þegar leitað var til Vestmanneyinga um lið- sinni, var þeiin sagt, að Mundahl hefði tekið þetta að sér vegna þess, að ísland væri eina landið á hnettinum, þar sem hann hefði ekki dregið strönduð skip á flot. Þarna unnu þessir 25 menn viku eftir viku. Aðbúðin var öll hin lélegasta, en Gisli Gúmm, hinn kunni úr þjóðkórnum, lét menn óspart taka lagið, og dró það úr ömurleik manna. En þrátt fyrir allan söng Gisla Gúmm og kunn- áttu Mundahls varð Simpson ekki mjakað af fjörunni. ATið þetta ævintýri töfðust togar- arnir „Fiskines" og „Akranes" í níu vikur frá veiðum. — En forsjónin vildi enn á ný gefa Mundahl tækifæri til að reyna verk- fræðihæfileika sína. Togarinn „Oceanic“ strandaði á Seltjarnarnesi, og þreytti Mun- dahl við að ná honum á flot. Við það töfð- ust tveir af togurum ísafoldarfélagsins frá veiðum í fimm vikur hvor. Allt það, sem nú hefur verið talið, voru fyrst og fremst orsak- ir þess, hversU til tókst um Vídalínsútgerð- ins, en svo var útvegur þessi jafnan nefndur. Um haustið réðst Thor Jensen í þjónustu ísafoldar og fluttist þá til Hafnarfjarðar. —

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.