Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 17

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 17
Æ G I R 231 inurka á því, að 10 þús. kr., cr var upphaf- lega skuld í skipinu, voru borgaðar upp, og auk þess var eigendunum greidd 17% í arð. Árið 1907 ‘var einnig hagstætt hvað afla snerti, en þá varð félagið fvrir því óhappi, að fiskflutningaskip fórst í hafi, en í því átti Coots-útgerðin talsvert af verkuðum fiski, sem var of lágt tryggður. Með þessu ári lét Einar Þorgilsson af stjórn félagsins, en við tók Árni Eiríksson kaupmaður í Reykjavík. Stjórnaði hann því hið næsta ár, en það var siðasta árið, sem Fiskveiðahlutafélag Faxa- llóa starfaði, því að Coot strandaði við Keil- isnes 8. desember um veturinn, er hann var að draga kútter Kópanes til lands. Þegar svo var komið, var félagið leyst upp, og stóð hagur þess þá þannig, að félagsmenn fengu endurgreilt nær allt hlutaféð, sem þeir höfðu lagt fram í uppahfi. Indriði Gottsveinsson, skipstjóri á Coot, er enn á hfi, og hefur hann sagt mér ])að, sem hér er greint frá Coots-útgerðinni. Hann er fæddur á Árvelli á Kjalarnesi 13. júlí 1869. hegar hann var á fimmtánda ári, byrjaði hann að róa með föður sínum suður í Vog- um, en úr því réri hann á vorin frá Seltjarn- nrnesi og Kjalarnesi. Haustið 1898 innritað- ist Indriði í Stýrimannaskólann og lauk Prófi þaðan vorið 1899. Undanfarin ár, eða 'i'á 1892, hafði hann verið á ýmsum þil- skipum. Árið 1900 byrjaði hann skipstjórn. Áar hann í tvö ár með skip frá Akranesi, fyrst með Björninn og' síðan Harald. Síðan h)k hann við Haffaranum, eins og fvrr er getið. Eftir að Coot strandaði var hann eitt ar skipstjóri á íslendingnum, en tók siðan við Thora frá Grimsby. Skip þetta var eign Álice Black i Grimsby, eitt af þeim fjórum, sem hann gerði lit héðan. Árið 1911 tók hann við skipstjórn á togaranum Garðari, er var hér á vegum Garðars Gíslasonar og var á honum þar til í júlí 1913. Hætti hann þá skipstjórn og jafnframt sjómennsku. Sex ár- ’u næstu hafði hann þó afskipti af útgerð, hví að þann tima sá hann um síldarútveg Elíasar Stefánssonar. Árið 1905 mun jafnan verða talið mark- vert i íslenzkri útgerðársögu. Þá hefjast þau þáttaskil í sjávarútveginum, sem eru upphaf að þeirri atvinnulegu og fjárhagslegu þróun, sem skilað hefur þjóðinni lengra áleiðis á 40 árum, en áður hafði tekizt á 10 öldum. — Coot var vísirinn að togaraútgerðinni. Hann var hvorki stór né nýr og eigi út- búinn þeim beztu tækjum, sem þá tíðkuðust. Hann fór engar langleiðir til veiða. Flóinn var það svæði, sem hann hélt sig aðallega á. En útgerð hans bar sig eigi að síður. Ýmsir þeir menn, sem síðar komu mjög við sögu togaraveiðanna hér, voru skipsmenn á Coot. Magnús Magnússon, er var einn af stofnend- um Alliance hf. var á honum sumarið 1906, beinlínis til þess að kynna sér þessar veiðar. Guðmundur í Nesi og Jón Jóhannsson voru báðir á Coot, og loks má nefna Guðbjart Guðbjartsson, er tók við vélgæzlu á Jóni for- seta, er hann kom hingað til lands. — Menn voru nú ekki lengur jafnfálmandi í þeirri trú, svo sem áður hafði verið, að togaraút- gerð héðan gæti borið sig. Árið 1906, þegar Cootsútgerðin gat greitl 17% í arð, var Alli- ance hf. stofnað, en það er nú elzta togaraút- gerðarfélag á íslandi. Lét það smíða stórt og vandað skip (Jón forseta), er kom hingað í byrjun árs 1907. Litlu síðar kom annar tog- ari, stór og vandaður, hingað til lands, en hann var eign íslandsfélagsins. Eltir að þeir hyrjuðu hér veiðar, dró fyrir alvöru úr vom- unum, sein fylgt höfðu íslendingum eins og skiiggi, þegar rætt hafði verið um hérlenda logaraútgerð. Nú, í fyrsta skipti í sögunni, höfðu íslenzku sjómennirnir sambærileg skip við útlendinga, og þá kom það fljótt í ljós, sem marga hafði grunað áður, að þeir mundu sízt verða eftirbátar beztu erlendra sjómanna. Svipuð er sagan enn í dag. F'ái ís- lenzku sjómennirnir sambærileg tæki við aðrar fiskveiðaþjóðir, er hér stunda veiðar, mun ekki standa á þeim að skipa svo rúmin, að á ]iá hallist ekki.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.