Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 19

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 19
Æ G I R 233 og fram á dag daginn eftir. Snerist þá til norðurs aftur, og héldu skipverjar sig sjá efstu hnúkana á Revkjanesi, er þeir sigldu suður eftir suðaustan rokið. Gekk í þessu baksi dag eftir dag, því að viðburður var, ef hann stóð af sömu átt í heilan sólarhring. Ekki urðu þeir varið við Færeyjar á leið- inni suður. Þegar þeir höfðu verið að velkj- ast 17 sólarhringa, taldi Steinþór stvrimaður sig sjá land, en hann var þá á vakt. Fór hann niður til skipstjóra og sagði honum tíðind- in. Vildi skipstjóri á alla lund eyða því og fór að segja ýmsar sögur af því, hvað mönn- um missýndist oft í þessum efnum. „Ég man eftir því,“ sagði skipstjóri, „að einu sinni kom maður niður til mín og sagðist sjá til lands. Ég átti nú bágt með að trúa því, en lét þó til leiðast að fara upp og sjá þetta land mannsins. En hvað heldurðu að það hafi verið? Bara ský.“ Steinþór vildi nú ekki fallast á, að því væri svo farið með landið, sem hann sæi. Hætti hann ekki fyrr, en hann hafði nuddað skipstjóra upp. Sá hann jafn- skjótt og upp var komið, að hér var ekki um neina missýningu að ræða og mundi það vera Skotlandsstrendur, sem þeir sæju. — Eftir 23 sólarhringa ferð komu þeir á Páhna upp undir Líðandisnes í Noregi. Hafnsögu- maður kom til móts við þá og bauðst til að fylgja þeim til Kristjánssands. Vildi hann fá 35 kr. fyrir fylgdina, en slíkt þótti ekki við- hlítandi. Eftir nokkurt þjark var svo komið, uð Norðmaðurinn hafði lækkað sig um fimrn kr. En skipstjóra þótti enn of borgað og hafnaði því leiðsögu Norðmannsins. Var það um hádegisbil, að þeir skildu. Pálma var nú snúið til hafs á ný og segl öll höfð einrif- uð. Veðurhæðin jókst, eftir því sem fjær dró landi, og undir kvöld var komið gufu- i'ok. Reynt var að breyta um stefnu, en það endaði með kúfvendingu. Segl voru enn niinnkuð og aðeins haft uppi stubbur af stagsegli og stórsegli og stóð svo í sjö sólar- hringa, og voru þeir þá komnir niður undir England. Er þeir lögðu að heiman, höfðu þeir með s<ír kvartel af lýsi, er geymt var frammi i hikar. Nú var gripið til kvartelsins og lýs- inu hellt í slrigadruslur, er síðan voru hengdar á kinnunginn á skipinu með það fyrir augum að draga úr áhrifum stærstu sjóanna. Á hádegi daginn eftir að skilið var við norska hafnsögumanninn fékk Páhni á sig þrjú brot. Við fyrsta sjóinn brotnaði „rúff-ið“ allt bakborðsmegin. Annar sjórinn tók burtu björgunarbátinn, er festur var niður á lestarlúguna. Sá aðeins í hvít sárin á kengjunum, sem skrúfaðir voru i dekks- bitana, en í þá hafði böndum bátsins verið fest. Þegar þriðja sjóinn bar að, voru þeir Guðmundur og Steinþór staddir við for- mastrið, en Konráð hafði brugðið sér niður í lúkar til þess að ná í lýsi til að hella i strigadruslurnar. Sá Steinþór sjóinn svo snemma, að hann fékk bjargað sér niður i lúkar og læst honum, en Guðmundur tók það til bragðs að leggjast endilangur við „klydsholtið“ og halda sér þar sem hann mátti. Eigi veit hann, hversu lengi hann lá þar, en telur vist, að hann hafi misst með- vitundina um stund. Þegar skipið fór að rétta sig, kom í ljós, að sjórinn hafði tekið burtu lunninguna alla og styttur með, fram- an frá akkerisspöðum og aftur að reiða. Vængjahurðirnar á káetukappanum höfðu einnig farið, káetuhurðin opnast og sjór gengið þar inn. Eftir þetta lægði sjóinn, og fengu þeir ekkert brot á sig upp frá því. Pálmamenn höfðu nú nógu að sinna í bili. Bvrjað var á þvi að ausa káetuna, en síðan var allt flutt úr rúffinu niður í lúkar. Við lunninguna gerðu þeir á þá leið, að þeir tóku toppseglsrána, sem bundin hafði verið við dekkið, lögðu hana frá saxi og aftur fyrir reiða og negldu og bundu fasta, en boruðu göt fyrir reiðatogum. Kalfattað var í styttu- sárin á dekkinu með kaðli, sem þeir tættu sundur. Síðan tóku þeir gamalt stórsegl, skáru það niður og negldu af ránni og svo langt niður á skipsskrokkinn sem þeir náðu. Var svo frá þessu gengið, að það dugði það sem eftir var leiðarinnar. Eftir þetta áfall drifu þeir enn í sjö sólar- hringa. Var nú útivistin orðin svo löng, að eigi þótti annað ráðlegt en skammta vatn, og svo var á olíubirgðirnar gengið, að hætt

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.