Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 21

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 21
Æ G I R 235 Kafbátur sekk Laust eftir hádegi föstudaginn 10. nóvem- ber síðastl. var Goðafossi sökkt af kafbáti. Þegar atburður þessi skeði, átti skipið aðeins eftir 2V2 klst siglingu til Reykjavíkur. Tund- urskeytið hæfði skipið fyrir aftan miðju bakborðsmegin, og rifnaði skipssiðan allt frá 1. farrými að þriðja lestaropi. Féll sjór þar inn svo geysilega, að skipið sökk á 7— 10 mínútum. Jafnskjótt og turidurskeytið hæfði skipið stöðvuðust vélarnar og loftskeytatækin eyði- lögðust. Þeir, sem í vélarrúmi voru, munu annað hvort hafa farizt við sprenginguna, eða eigi komizt á þilfar nægilega snemma til þess að fá borgið sér. — Svo var annars ástatt, að aðrir skipverjar voru flestir á þiljum og með björgunarbelti, en farþegar voru ýmist staddir í borðsal eða í göngum og böfðu flestir klæðzt björgunarbeltum. — Aegna sprengingarinnar munu flestir hafa niisst meðvitundina um stund. Mönnum var skjótt ljóst, til hvers leiddi, og var því snúizt kappsamlega að björgun- arstarfi. Sá björgunarbáturinn, sem til náð- ist og ekki hafði eyðilagzt, var þegar losað- iii' og jafnframt nokkrir flekar. Nokkrir komust í bátinn, en allmörgum varð það eitt fyrir að reyna að komast á flekana. Þeir, sem i bátinn fóru, munu hafa drukknað. Þeim, sem náðu í að komast á flekana, var bjargað af skipum, er komu á vettvang. Á- höfn skipsins var 43, og þar af björguðust 20, en einn þeirra andaðist á leið til lands. Þjóðin var felmtri slegin vfir tíðindum þessum. Harmafregn þessi snart hana i hjartastað. Hún hafði búizt við, að kafbáta- hættan væri hjá liðin, en sem hendi væri veifað var sú von að engu gerð. Þegar slík tíðindi gerast, fær þjóðin litið að gert; samúðarhugur hennar og hjartaþel fær aðeins borið smyrsl i sár þeirra, sem harðast hafa orðið úti. Slikt verður jafnan nokkur huggun harmi gegn. ur Goðafossi. Þeir sem fórust. Farþegar: Dr. Friðgeir Ólason læknir, 31 árs, kona hans, Sigrún fíriem læknir, og börn þeirra þrjú: Óli sjö ára, Sverrir á þriðja ári og Sigrún á fyrsta ári. Voru þau hjón að koma alfarin heim eftir að hafa lokið framhalds- námi í læknisfræði vestra. Ellen Ingibjörg Wagle Doivncg, 23 ára, íslenzk kona gift amerískum hermanni og sonur þeirra, William, 2 ára. Halldór Sigurðsson, Freyjugötu 43, 21 árs. Ókvæntur. Sigríður Pálsdóttir Þormar, Hringbraut 134, 20 ára. Ógift. Steinþór Loftsson frá Akureyri, 21 árs. Skipverjar: Hafliði Jónsson, 1. vélstjóri, Hrinbraut 148, 00 ára. Kvæntur og átti uppkomin börn. Þórir Ólafsson, 3. stýrimaður, Blómvalla- götu 11, 39 ára. Kvæntur og' átti eitt barn 9 ára. Sigurður Haraldsson, 3. vélstjóri, Víði- mel 54. 27 ára. Ókvæntur. Guðmundur Guðlaugsson, 4. vélstjóri, Bakkastíg 1. 55 ára. Kvæntur og átti tvo uppkomna syni. Egjólfur Eðvtddsson, 1. loftskeytamaður, Bárugötu 34, 48 ára. Kvæntur og átti upp- komin börn. Lára Elín Ingjaldsdóttir, þerna, Skóla- vörðustíg 26 A, 42 ára. Ógift. Átti aldraða móður og eitt uppkomið barn. Sigurður Jóhann Oddsson, matsveinn, Vífilsgötu 6, 41 árs. Ókvæntur. Átti aldraða móður og 1 barn 15 ára. Jakob Sigurjón Einarsson, þjónn, Stað við Laugarásveg, 36 ára. Kvæntur, átti 2 börn, 8 og 4 ára.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.