Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 35

Ægir - 01.11.1944, Qupperneq 35
Æ G 1 R 249 Utvegsmannafundur í Reykjavík. Landssamband ísl. útvegsmanna boðaði til útvegsmannafundar 29. nóv. síðastl. og stóð •hann í 4 daga. Fulltniar voru mættir viða að af landinu, svo sem frá Vestmannaeyjum, Miðneshreppi, Gerðahreppi, Keflavik, Hafn- arfirði, Reykjavík, Borgarnesi, tsafirði, Ak- ureyri og Neskaupstað. Ólafur Thors forsætisráðherra og Gísli •lónsson alþm. fluttu erindi á fundinum. Mál það, sem fyrst var tekið til meðferðar, fjallaði um endurskipulagningu á samtökum útvegsmanna og lagafrumvarp fyrir sam- bandið, er sérstök nefnd hafði undirbúið. •hikob Hafstein, framkvæmdastjóri sam- bandsins, flutti erindi um lagafrumvarpið, en það var samþykkt síðar, eftir að gerðar höfðu verið á því nokkrar breytingar. Eitt megin atriðið í breytingum á lögum sam- bandsins var það, að hér eftir skuli sain- bandið hafa bein afskipti af kaup og kjara- samningum sambandsfélaga og samræmingu á þeim í hinum ýmsu verstöðvum svo og það, að sambandið taki að sér sameiginleg innkaup á nauðsynjavörum sambandsfélaga. Sverrir Júlíusson i Keflavík var kosinn formaður sambandsins í stað Kjartans J’hors, er baðst undan endurkosningu. Eftir- íarandi ályktanir voru samþykktar á fund- inum: J'il rikissijórnnrinnar. Aðalfundur Landssambands íslenzkra úl- vegsmanna, haldinn í Kaupþingssalnum 1. desember 1944, sendir ríkisstjórninni heilla- óskir sínar. Fundurinn fagnar því, að tekizt hefur að mynda þingræðisstjórn í landinu, Að síðustu skal þess getið, að kræklings- 'ðnaður hefur náð meiri fullkomnun hjá Lönum en nokkurri annarri þjóð hér í álfu, °S hef ég því sérstaklega gert mér far um ;|ð gefa upplýsingar um málið byggðar á dönskum heimildum. og lýsir sig fylgjandi þeim megin stefnumál- um stjórnarinnar, er miða að nýbyggingu framleiðslutækja þjóðarinnar og öryggis sjálfstæðis hennar út á við. Treystir fund- urinn því, að ríkisstjórnin beri gæfu til að starfa til heilla og blessunar fyrir þjóðina og væntir þess, að einlægni, traust og gagn- kværnur skilningur ríki í áformum hennar og athöfnum. Fiskimið við Faxaflóa. Almennur fundur útvegsmanna, haldinn í Reykjavík 29 nóv. til 2. des. 1944, skorar á ríkisstjórn og Alþingi að gera allt, sem unnt er, til þess að fiskimiðin í og við Faxaflóa verði öll opin til fiskveiða strax í byrjun næstu vertíðar (frá áramótum). Takist ekki að fá þessu framgengt, hlutist söniu aðilar um, að hlutaðeigendur fái bætt það tjón, sem af þessu hlýzt, að svo miklu leyti sem auðið er. Um útgerðarkostnað. Aðalfundur Landssambands ísl. litvegs- manna, haldinn í Revkjavík 29. nóv. til 2. des. 1944, gerir eftirfarandi ályktun um af- komu smáútvegsins: Þar sem allur tilkostnaður við útgerð lief- ur vaxið gífurlega á síðustu árum en verð afurðanna hins vegar að mestu staðið í stað, er hlutfallið á milli tilkostnaðar og afrakst- urs þegar orðið mjög óhagstætt fyrir útgerð- ina, en að þetta hefur ekki þegar leitt til stöðvunar, er mest að þakka óvenjulegu aflamagni síðustu ára, bæði á þorsk- og síld- veiðum, svo og almennt bættum hag útvegs- manna fyrstu stríðsárin, en yfirleitt hefur hagur þeirra versnað síðan. Fundurinn teiur því mjög aðkallandi nauðsyn að afkoína smáútgerðarinnar verði bætt með einhverjum ráðum. Skorar fund- urinn því á Alþingi og ríkisstjórn að taka jiessi mál nú þegar til rækilegrar athugun- ar, og bendir á, hvort ekki muni fært að

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.