Ægir - 01.06.1949, Síða 6
92
Æ G I R
Lifrarbrœðslan í Yestmannaeyjum.
]>á þá móti 1159 smál. A þessari fyrstu ver-
tíð notaðist samlagið við gömul tæki, en
fyrir næstu vertíð liafði vélsmiðjan Héð-
inn sett alfarið upp nýjar vélar i bræðsl-
una. Á síðastliðinni vertíð var sett olíu-
kynding í bræðsluna. En árið 1940 kom
samlagið sér upp eigin kaldbreinsunarstöð
og er þar kaldhreinsað allt lýsi eyjamanna,
einnig af tögurunum.
Mest hefur samlagið tekið á móti til
nýtingar á einni vertíð 1711 smál., en það
var árið 1938. Á síðast!. vertíð var brætt
þar um 1300 smál. af lifur. Mest hefur ver-
ið brætt í bræðslunni 60 smál. á einum
degi, en bræða mætti þar meira magn ef
þess þyrfti með. Yfir vertíðarmánuðina
vinna venjulegast 14 menn í bræðslunni
auk verkstjóra, en fleiri, þegar kaldhreins-
að er samtimis. Siðan 1940 hefur Peter
Andersen verið verkstjóri hjá samlaginu.
Fyrsta árið, sem samlagið starfaði, var
greitt 17 aura fyrir kg af lifur, en 35 aura
1935. Hæst liefur verið greitt kr. 1.90 fyrir
lifrarkilóið, en það var árið 1942. Síðastl. ár
var borgað kr. 1.60. Mestur ársútflutningur
samlagsins hefur numið 3 208 135 kr. fob.,
en það var árið 1944. Alls hefur samlagið
selt lýsi fyrir 26 680 þús. kr. frá byrjun og
til ársloka 1948, eða fyrir 1 667 þús. kr.
að meðaltali á ári.
Fyrsta starfsár samlagsins var reksturs-
kostnaður þess 30.61% af andvirði lýsis-
ins, en lægstur hefir hann orðið 20.69%.
Úr lifrinni hefir jafnaðarlegast fengizt
56% af lýsi, en mest 62%, og var það árið
1937.
Fyrstu stjórn samlagsins skipuðu: Jó-
hann Þ. Jósefsson, Ólafur Auðunsson og