Ægir - 01.06.1949, Side 13
Æ G I R
99
Hús Vinnslustöðvarinnar i Veslmannaeijjum. Myndin var lchin síðasll. vetur.
fyrir Vinnslustöðina um liver mánaðar-
mót. Er talinn mikill sparnaður að þessu
fyrirkomulagi. Yfir sumarmánuðina starfa
því ekki á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar
nema ein stúlka auk framkvæmdarstjóra.
Síðastliðinn vetur greiddi Vinnslustöðin
8—9 milljónir króna fyrir hráefni og má
þvi fullvíst telja, að einungis Síldarverk-
smiðjur ríkisins kaupi sjávarafurðir fyrir
hærri upphæðir en Vinnslustöðin.
Uj)])haflega var haldið eftir 6% af á-
hyrgðarverði fisksins til þess að mæta
skakkaföllum, ef einhver yrðu. En fram
til þessa hefur þessi hundraðshluti verið
greiddur útgerðinni í lok hvers reiknings-
árs og hefur lnin því fengið fullt ábyrgðar-
verð fyrir afla sinn. Síðastl. vertíð verk-
aði Vinnslustöðin öll hrogn fyrir útgerðar-
menn og hafa þeir vald á gjaldeyrinum,
ef þeir óska.
Meðan á styrjöldinni stóð var allur sá
fiskur, er ekki var hraðfrystur, seldur
ísvarinn úr landi. En þegar henni lauk,
þurftu menn að fara að verka fisk í salt
á nýjan leik, en þá stóð svo á fyrir inörg-
um, að þá vantaði hús til aðgerðar og
söltunar. Var þetta ein aðalástæðan til
þess að ráðist var í stofnun Vinnslustöðv-
arinnar. Hefur sú framkvæmd sparað út-
vegsmönnum í Eyjum stórfé að því leyti.
i
L