Ægir - 01.06.1949, Qupperneq 15
Æ G I R
101
kasti. Na>sta ár ganga úr 3, þeir sem eftir
silja. Enn fremur skulu kosnir 2 vara-
stjórnendur til 1 árs í senn. Stjórnin kýs
sér formann. Formaður kveður til stjórn-
arfunda og stjórnar þeim. Stjórnarfundur
er lögmætur, ef 3 stjórnarnefndarmenn
eru mættir. Afl atkvæða ræður á stjórnar-
fundum. Stjórnin skal lialda gerðabók og
skulu fundargerðir undirskrifaðar af
stjórnendum. Stjórnin boðar til félags-
funda og undirbýr j)á, og annast öll störf
milli funda. Hún leggur fyrir aðalfund til
úrskurðar endurskoðaða reikninga fyrir
næsta ár á undan. Hún hefur eftirlit með
húsum, áhöldum og eignum félagsins og
gætir hagsmuna þess í öllum greinum.
Hún er sóknar- og varnar aðili í öllum mál-
um félagsins. Undirskrift þriggja stjórn-
enda skuldbindur félagið.
Stjórninni er heimilt að gera leigusamn-
ing eða kaupsamninga um húsnæði fyrir
vinnslustöð félagsins og kaupa vélar og'
önnur tæki. Sömuleiðis að veðsetja hús-
eignir og lausafé félagsins.
Laun stjórnarinnar skulu ákveðin á að-
alfundi.
6. gr. — Stjórn félagsins ræður fram-
kvæmdarstjóra og felur honum það af
störfum sínum, sem henni sýnist. Hún
gerir starfssamning við hann og semur
um laun hans, sem og annarra starfs-
manna.
7. gr. — Fundir skulu haldnir, þegar
stjórninni þykir ástæða til. Skulu þeir boð-
aðir með dags fyrirvara. Lögmætir félags-
fundir hafa æðzta vald í ölluin málum fé-
Jagsins, innan þeirra takmarka, er reglur
þessar setja.
Fundir eru lögmætir, ef á þeim mæta
fulltrúar helmings atkvæðamagns félags-
ins. Reynist fundurinn ekki lögmætur af
þessum sökum, má boða til hans á ný og
er hann þá lögmætur, án tillits til at-
kvæðamagns fundarmanna. Fundum stýrir
þar til kosinn fundarstjóri og lýsi hann
yfir, hvort fundur sé lögmætur. Gerðabók
skal haldin.
8. gr. — Reikningsár félagsins skal vera
almanaksárið. Reikningar félagsins skulu
endurskoðaður af löggiltum endurskoð-
anda, auk eins endurskoðanda kosnum á
aðalfundi, og einum til vara.
9. gr. — Um atkvæðisrétt í félaginu fari
þannig, að fyrir hverjar fullar 500 krónur
af stofntillagi liafi félagsmaður eilt at-
kvæði. Enginn félagsmaður má fara með
meira en 15% af samanlögðu atkvæða-
magni félagsins. Frá stofnfundi til næsta
aðalfundar fari um atkvæðagreiðslu á fé-
lagsfundum, svo sem segir í hráðabirgða-
ákvæðum, sem samþykkt verða. Afl at-
kvæða ræður úrslitum á félagsfundum, þó
þarf % hluta mættra atkvæða til laga-
breytinga, en þær má aðeins framkvæma
á aðalfundum félagsins.
10. gr. —- Aðalfundur skal haldinn fyrir
maílok ár hvert. Þar skal tekið fyrir: 1)
Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi liðins
árs. og leggur fram endurskoðaða reikn-
inga fyrir það ár, sem bornir skulu undir
atkvæði. 2) Kosin stjórn og varastjórn, og
endurskoðendur. 3) Ákveðnar starfsþókn-
anir til sljórnenda. 4) Umræður um til-
liögun starfseminnar fyrir yfirstandandi
starfsár. 5) Önnur mál, sem upp verða
borin.
11 gr. — a) Stofnendur félagsins skuld-
binda sig til þess, að leggja fram sem
stofntillag krónur 150.00 fyrir hverja
hrúttó smálest af bátaeign sinni, við stofn-
un félagsins. Heimilt er þeim, sem óska,
að greiða stofnfé með ávísun á 2% af
fiskframleiðslu þeirra, sem lögð er inn til
félagsins, þar til tillagið er að fullu greitt.
b) Ábyrgðir félagsmanna takmarkast
við inneignir þeirra í sjóðum félagsins.
12. gr. — a) Allur hagnaður af starf-
rækslu félagsins, þegar félagsmönnum
hefur verið reiknað fiskinnlegg með gang-
verði og allur reksturskostnaður greiddur,
skal skiptast þannig, að 50% skulu leggj-
ast í sameignarsjóð og 50% í séreignar-
sjóð félagsmanna eftir innleggsverðmæti.
b) Af stofnframlögum félagsmanna
skulu reiknast vextir 5% p. a., og færast
árlega á sérstakan reikning hvers félags-