Ægir - 01.06.1949, Qupperneq 32
118
Æ G I R
Þórður Guðjónsson,
Akranesi.
leiddi hún 750 sniál. af nijöli. A vertíðinni
1048 var greitt kr. 1.45 fyrir lifrarlítrann.
Heimildarmenn: Utgerðarmcnn í Hafnarfirði.
Reykjavík.
Að þessu sinni stunduðu 26 bátar
þorsltveiðar úr Reykjavik, að nokkru ráði.
Nokkrir bátar fóru róður og róður, og er
þeirra ekki getið í skýrslunni. Langflestir
bátanna veiddu með botnvörpu eða 18
talsins, en 8 stunduðu línuveiðar. Af þeim
bátum, sem veiðar stunduðu l'rá Reykja-
vík, voru þrír aðkomubátar.
Vertíð hófst um miðjan janúar, og
stunduðu sex bátar línuveiði í þeim mán-
uði. Sá báturinn, sem flesta fór róðrana,
reri 62 sinnum, og skiptast róðrarnir
þannig eftir mánuðum. Janúar 8 (6),
iebrúar 18 (14), marz 22 (14), apríl 12
(16) og 7 í mai (2). — Vélbáturinn Ás-
geir, 63 rúml. að stærð, eign Ingvars Vil-
hjálmssonar o. fl. varð aflahæstur af línu-
bátunum, en bann fékk 451 smál. af fiski
og 31 þús. 1. af lifur í 62 róðrum. Meðal-
afli hans í róðri varð því 7278 kg, en hjá
aflahæsta línubátnum á vertíðinni 1948
varð meðalaflinn 7982 kg. — Formaður á
Ásgeiri er Óli Guðmundsson, Reykjavík.
F.ins og fyrr er getið urðu togbátarnir 18
á vertíðinni, en þeir byrjuðu ekki almennt
veiðar i'yrr en í marzmánuði. Aflabæstur
af þeim bátum var Helga R. E. 49. Hann
fór 21 veiðiferð og aflaði 373 smál., eða
um 18. smál. að meðallali í hverri ferð.
— Heildaraflinn af þeim bátum, sem um
getur í skýrslu Reykjavikurbátanna, varð
5538 smál. og fór langmestur hluti þess í
frystingu. En lifrarfengur þessara báta
yarð sem næst 337 þús. lítrar.
Hcimildarmenn: Ýmsir útgerðarmenn i Reykjavik.
Akranes.
Vertíðin á Akranesi byrjaði 28. janúar,
en lauk um miðjan maí. Átján bátar stund-
uðu veiðar og áttu þeir allir heiina á Akra-
nesi. Má það beita sama bátatala og árið
áður. Allir veiddu bátarnir með línu.
Tíðarfar var fremur erfitt til sjósóknar,
einkum þó i febrúar. Sá báturinn, sem ofl-
ast reri, fór 66 sjóferðir (65), og skiptust
þær þannig eftir mánuðum: Janúar 3 (9),
febrúar 13 (18), marz 22 (11), april 16
(18) og 12 í maí (9).
Aflabrögð voru svipuð og á vertíðinni
1948, eða um 6% smál. að meðaltali í
róðri. Mestan afla í róðri fékk v./b Sig-
urfari 2. marz 18 330 kg. Þessi sami bátur
varð aflahæstur yfir vertíðina, fékk alls
537 smál. í 66 róðrum og um 36 þús. lítra
lifur. Meðalafli lians í róðri varð því 8142
kg. Sigurfari er 61 rúml. að stærð og er
eign Bergþórs Guðjónssonar o. fl. Skip-
stjóri á bonum er Þórður Guðjónsson, en
hann var einnig aflakóngur á Akranesi á
vertíðinni 1947. Hæstir aflahlutir eru áætl-
aðir 14500 kr., meðalblutir um 10 þús. kr.
og lægstu hlutir um 6 þús. kr.
Heildaraflinn í verstöðinni varð 6681
smál., og er 1018 smál. meiri en á vertíð-
inni næsta ár á undan. Vertíðaraflinn var
liagnýttur á þessa lund. Til hraðfrystingar
fóru 5057 smál., til útflutnings í is 1217
smál., í salt 402 smál. og' i niðursuðu 25
smál.
Beita var næg alla vertíðina. Var það síld
veidd í flóanum, nokkuð keypt að norðan
og enn fremur frá Noregi. — Veiðarfæra-
tap varð með minna móti. Tafir frá veið-
um urðu engar vegna veikinda.
Undanfarnar fimin vertíðir hefur báta-