Ægir - 01.01.1951, Side 10
4
Æ G I R
METRAR
HAFNARFJORÐUR
OVPI ER MiDAO VIÐ STÖRSTRAUMSFjbRUBORO PO.o)
FLOOH/EO UM STÖRSTRAUM 4,i m
YZTU I60m. SUOURGAROS ERU ÖFULLGEROIR
og kostnaðarsamt verk, vegna þess hve
botninn er gljúpur og' burðarþolslítill og
langt niður á fastan botn. En það er önn-
ur saga, sem ekki verður farið nánar út í
bér. Kostnaðarverð garðanna eins og þeir
eru nú er um 6 milljónir króna.
Næstu verkin, sem liggur við borð að
gera innan hafnarinnar til að létta af-
greiðslustörfin, auka leguplássið og skapa
betra öryggi, er bygging togarabryggju og
bátabryggju i suðurhöfninni, við garðinn.
Hefur allstórt svæði þar verið dýpkað með
þessi verk fyrir augum. Sömuleiðis þarf að
gera uppfyllingar innan við garðinn og
breikka hann vegna umferðar. Þá verður
einnig að leng'ja suðurgarðinn um þá 160
m, sem á vantar að hann sé fullgerður, og
befur verið rætt um að bafa innan á hon-
um þar bryggju fyrir mjög stór skip, með
allt að 10 m djúpristu. Dvpi er þar nú 8—9
m og auðvelt að dýpka um það, sem á
vantar.
Auk þessa, sem þegar er getið, hefur
ýmislegt fleira verið gert til að auka örygg'i