Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1951, Page 12

Ægir - 01.01.1951, Page 12
6 Æ G I R Togarinn Ilöðull, cign Venus h. f. í Hafnarfirði. togurum, og ber hann nafnið Surprise. Með- an á styrjöldinni stóð lét þetta félag smíða vélskipið Eddu, og er að því vikið á öðrum stað. Fyrir styrjöldina hafði Einar Þorgils- son látið smíða stórt fiskþurrkhús, er var þá fullkomnasta hús sinnar tegundar hér á landi. Loks má geta þess, að Einar Þor- gilsson stóð ásamt Alliance h.f. að smíði síldarverksmiðjunnar á Djúpavík á sínum tíma, og er félagið enn meðeigandi að henni. Einn af þeim mönnum, er mjög mikið hefur komið við sögu togaraútgerðar í Hafnarfirði síðustu tvo áratugina, er Loftur Bjarnason. Hann er framkvæmda- stjóri fyrir hlutafélaginu Venus, en það fé- iag eignaðist samnefnt skip árið 1936. Auk þess sem það félag á enn þann togara, lceypti það einn af nýsköpunartogurunum og nefndi hann Röðul. Síðan hann kom til landsins hefur hann verið aflahæstur af Hafnarfjarðartogurunum, og árið 1949 námu sölur hans erlcndis hærri fjárhæð en nokkurs annars togara. Skipstjóri á Röðli er Vilhjálmur Árnason, en hann hafði áður verið skipstjóri á Venusi frá því að hann kom til landsins. H.f. Venus á fiskþurrk- hús, er það hafði látið reisa fyrir síðari heimsstyrjöld. Þá er að nefna tvö félög, er bæði eiga gamla togara. Annað er h.f. Vifill, er á Haukanes (áður Njörð), en hitt er h.f. Hrafna-Flóki, sem á Óla Garða (áður Ot- ur). Hlutafélagið Akurgerði á liins vegar einn af nýsköpunartogurunum, en það er Bjarni riddari. Framkvæmdastjórar fyrir þessum félögum eru Ásgeir Stefánsson og Þórarinn Egilson, En Þórarinn hefur lengst allra núlifandi manna í Hafnarfirði verið riðinn við útgerð. í byrjun styrjaldarinnar keypti Kristján Bergsson o. fl. Reykvíkingar togarann Sviða, en hann fórst hér við land nokkru síðar. Hið svo nefnda Sviðafélag og' h.f. Hrimfaxi í Reykjavik keyptu síðan nýjan togara 1947 og ncfndu Garðar Þorsteinsson. Hcfur hann síðan verið gerður út frá Hafn- arfirði. Eigendur Garðars Þorsteinssonar komu sér upp fiskþurrkhúsi síðastliðið sumar. Er þá einn togari ónefndur, en það er Faxi (áður Arinbjörn hersir). Eigandi hans er Fiskaklcttur h.f. Þá er bæjarútgerðartogararnir eru með taldir, verða senn ellefu togarar í Hafnar- firði, og er það miklu meira miðað við mannfjölda en á nokkrum öðrum stað hér á landi.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.