Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1951, Síða 14

Ægir - 01.01.1951, Síða 14
8 Æ G I R og hefði þvi mátt ætla, að haldið hefði verið áfram á sömu braut, eða meiri hluti bæj- arstjórnar stigið sporið til fulls og keypt þetta skip eða annað og bæjarsjóður byrj- að útgerð á eigin spýtur. En af því varð ekki að sinni, enda ekki kominn sá skriður á málið, að það væri hægt.“ „En hvenær var bæjarútgerðarmálið tek- ið upp að nýju?“ „Áður en ég vík að því, er rétt að drepa á það, að í Hafnarfirði var ríkari ástæða til þess að fara inn á þessa nýju braut en víða annars staðar. Orsökin til þess var sú, er nú skal greind. Arið 1924 hóf enskt l'élag, Hellyers Bros, logaraútgerð frá Hafnarfirði og raka hana samfleytt í sex ár. Á vegum þess voru jafn- an gerðir út finnn og sex togarar frá Hafn- arfirði. Við þetta jókst vinnumarkaðurinn í Hafnarfirði mjög mikið, en það hafði í för með sér allmikla fólksflutninga til bæjarins. En þegar starfræksla Hellyer Bros í Hafn- arfirði hætli slcyndilega 1929, gcrðist þröngt fyrir dyrum hjá verkafólki, enda rnátti við minnu en missi sex skipa, en þar á ofan bættist svo það, að tvö útgerðarfyrirtæki i bænum urðu um svipað leyti að hætta starl'- semi sinni sökum fjárhagsörðugleika. Allt leiddi þetta til þess, að meiri hluti bæjar- „Mai“, fyrsti togarinn, sem Bœjarútgerð Ilafnarfjarðar eignaðist. stjórnar taldi óhjákvæmilegt að taka bæj- arútgerðarmálið upp að nýju. Var um það íjallað í ársbyrjun 1931 og hinn 12. febrúar var samþykkt, að bæjarsjóður lceypti tog- arann Maí af Útvegsbankanum. Kaupverð hans var 235 þúsund krónur, og var það greitt með víxli. Um svijiað leyti var svo fiskverkunarstöðin Edinborg keypt af ekkju Ágústs Flygenrings fyrir 140 þús. kr. Við, sem stóðum að þessum ráðstöfun- um, mættum mikilli andstöðu, enda urðu um þær miklar deilur, en ekki verða þær raktar hér. Fyrsta árið, sem Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar starfaði, varð verulegt tap á henni, en það stafaði einfarið af lækkandi salt- fisksverði. Árin 1932 og 1933 varð hins vegar nokkur hagnaður af útgerðinni, og með þeim árangri vörðum við okkur gagn- vart andstæðingum bæjarútgerðarinnar, þegar að því var horfið að kaupa annan togara, en það var árið 1934. Þegár sú ákvörðun var tekin, var ekkert skip fáanlegt hérlendis, en hins vegar voru togarar lausir fyrir í Englandi og Frakk- landi. Varð því úr, að Ásgeir Stefánsson forstjóri bæjarútgerðarinnar og Gísli Jóns- son, síðar alþm., fóru til Frakklands þeirra erinda að ná þar kaupum á togara. Það er

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.