Ægir - 01.01.1951, Page 15
Æ G' I R
ekki of djúpt í ár tekið, þótt sagt sé, að
óhægt hafi verið um vik með þessi skipa-
kaup. Peninga til slíkra hluta var hvergi
aJS fá. Lagt var mjög hart að fátækum
mönnum í Hafnarfirði að kaupa 6% skulda-
bréf af bæjarútgerðinni. Tókst þannig að
fú 20 þús. kr„ en það nægði ekki. Árangur-
mn af för Asgeirs og Gísla var því bundinn
við það, að togaranum Maí Iánaðist að selja
vel isfisk i Englandi, en hann fór í sama
mund með ísfiskfarm þangáð. Sú gifta
fylgdi bæjarútgerðinni, að Maí fékk gott
verð fyrir fiskinn, og' var hægt að nota
nokkuð af andvirði hans til togarakaup-
nnna. Kaupverð hins franska togara var
150 þús. kr., og var fimmtungur kaupverðs-
ins greiddur við afhendingu skipsins, en
það sem eftir stóð á næstu fimm árum. Skip
þetta var nefnt Júní, og var það í eign bæj-
arútgerðarinnar þangað til það strandaði
við Sauðanes vestur 1. des. 1948.
Frá því að bæjarútgerðin var stofnuð og
fram að styrjaldarárunum gerði hún skip
sin ýmist út á þorskveiðar í ís og salt eða
lil síldveiða. Eins og kunnugt er voru þessi
ár útgerðinni yfirleitt þung í skauti. Á þess-
um árum var tajiið á togurum bæjarút-
gerðarinnar 600—700 þús. kr„ en það svar
aði liðlega til vaxtaumsetningar fyrirtæk-
isins á sama tíma. Þess ber jafnframt að
geta, að á sama tima greiddi bæjarútgerðin
2.8 millj. kr. í vinnulaun.“
Árið 1947 var keyptur einn af hinum
fyrri nýsköpunartogurum, og var hann
nefndur Júlí. Og nú nýlega, eða 5. janúar
síðastl., var undirritaður samningur um
kaup á einum af hinum tíu togurum, sem
ríkisstjórnin hefur samið um smíði á í
Englandi. Skip þetta er væntanlegt til lands-
ins í febrúarlok, og hefur það verið nefnt
Júní.
Áður en horfið er frá að segja frá því,
er beinlínis snertir útgerðarþátt þessa fyr-
irtækis, er rétt að drepa á það, að haustið
1932 var stofnað í Hafnarfirði samvinnu-
félagið Haulcanes, en það keypti togarann
Njörð og nefndi hann eftir fyrrgreindu fé-
9
lagi. Margir Hafnfirðingar, einkum sjó-
menn, stóðu að þessum félagsskap, en for-
stjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar átti
mikinn þátt í, að til þess var stofnað og
veitti því forustu alla tíð, eða í sex ár. Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar annaðist afgreiðslu
skipsins og' sá um að verka fisk þess.“
„Hvað er að öðru levti að segja um bæj-
arútgerðina síðasta áratuginn?"
„Svo sem öllunr er í fersku minni, vænk-
aðist hagur togaraútgerðarinnar skjótt
eftir að lieimsstyrjöldin síðari kom til sög-
unnar, og gilti í þeim efnum sama um Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar. Um áramótin 1944
og 1945 var skuldlaus eign bæjarútgerðar-
innar orðin 8 millj. kr.
í tilefni af tíu ára afmæli fyrirtækisins
var 19. des. 1940 samþykkt að það gæfi 50
þús. kr. til barnaleikvalla og íþróttavallar í
bænum,,50 þús. kr. til jarðhitarannsókna í
Krísuvík, 50 þúsund kr. til malbikunar á
Strandgötunni og 10 þús. kr. til kaupa á
ljósatækjum til almennra ljósbaða í barna-
skólanum.
Á styrjaldarárunum keypti bæjarútgerð-
in y3 af Hellycrseigninni og auk þess hús
og lóð af Skipabryggjunni h.f. Stærsta á-
takið, sem bæjarútgerðin hefur gert í þágu
atvinnulífsins í Hafnarfirði, auk síns eigin
rekstrar, felst í einnar milljón króna fram-
lagi til smiða eða lcaupa á vélbátum. Sú
samþykkt var gerð 10. marz 1945. Þetta
tilboð var því skilyrði bundið, að jafnhátt
framlag kæmi annars staðar frá. Bátarnir
skyldu vera smíðaðir í Hafnarfirði að svo
miklu leyti sem þess væri kostur, og ekki
mátti bátur og vél, ef keypt var, vera eldra
en tveggja ára. Bátarnir skyldu gerðir út
frá Hafnarfirði og búsettir Hafnfirðingar
hafa atvinnu við þá að öðru jöfnu. Hlutafé
bæjarútgerðarinnar í hverjum bát skyldi
ekki fara fram úr 48% af framlögðu hluta-
fé. Ekki mátti framlag til báts verða meira
en 150 þús. kr„ eða 24% af kostnaðarverði.
Enn voru ýmis skilyrði, sem ástæðulaust
er að telja hér upp.
En uppskeran af þessu tilboði bæjarút-