Ægir - 01.01.1951, Síða 25
Æ G I H
19
Fiskimjölsverksmiðja
l.ýsi ifc Mjöl h.f.
Ha/narfirði
Ljósmynd: Guðni Pórðarson.
A þessum fundi var hlutafélagið Lýsi &
Mjðl stofnað, til þess að koma upp og starf-
rækja lýsis- og fiskmjölsverksmiðju í Hafn-
arfirði.
Á þessum tíma árs var skammt til næstu
vetrarvertíðar, en stjórn félagsins ákvað að
liefja framkvæmdir hið fyrsta, þótt að van-
búnaði yrði i upphafi. Fest voru kaup á
fiskmjölsvélum þeim, er áður voru í Garð-
ari og gátu unnið 5 smálestir af mjöli á
sólarhring. Litið og óhentugt húsnæði var
tekið á leigu hjá hafnarsjóði í „Svendborg"
og strax eftir nýár unnið að niðursetningu
vélanna.
I marz 1946 voru vélarnar komnar í gang
og unnu um 140 smálestir af fiskmjöli til
vertíðarloka, og nam verðmæti þess um kr.
90 þús. eða svipaða upphæð og vélarnar
kostuðu niðursettar.
Strax eftir stofnun félagsins voru samn-
ingar gerðir um kaup á lifrarhræðslutækj-
um frá Danmörku og nýrri fiskmjölssam-
stæðu frá Englandi til að vinna 25 smál. af
fiskmjöli á sólarhring, og leitað var eftir lóð
undir verksmiðjubyggingu. Lifrarbæðslu-
tækin komu til landsins í desember 1946 og'
voru sett niður í hið ófullnægjandi leigu-
húsnæði, þar eð félagið hafði ekki fengið
þá lóð til byggingar um sumarið, er það
hafði sótt um. Fiskmjölsvélarnar komu hins
vegar ekki til landsins fyrr en á miðju ári
1947.
Á vetrarvertíð 1947 var því unnið í gömlu
fiskmjölsvélunum og skiluðu þær mjölverð-
mæti að upphæð kr. 200 þús., en lýsisverð-
mæti nam kr. 975 jnis. eða heiklarfram-
leiðsla kr. 1 175 000.00.
í ágústmánuði sarna ár var félaginu út-
hlutað lóð til verksmiðjubyggingar sunnan
Óseyrar og framkvæmdir hafnar þegar í
stað. Var þeim að mestu lokið um næstu
áramót.
En þá fékk félagið nýtt og stærra verk-
efni að vinna. I desember streymdi síldin
stríðum straumum inn Faxaflóa og fyllti
Hvalfjör.ð hinum fagurglitrandi silfurfiski.
Margir hugðu, að nú væri nýr atvinnuvegur
að vaxa upp við Faxaflóa, og gullæði greip
fjöldann. Það var talað um, að ekki þyrfti
annað en að byggja nógu margar og stórar
síldarverksmiðjur sunnanlands til þess að
leysa öll gjaldeyrisvandræði þjóðarinnar á
komandi árum.
Af stað var farið, nýjar verksmiðjur á-