Ægir - 01.01.1951, Qupperneq 30
24
Æ G I R
Hafbjörg, einn af bátum
þeim, sem smiðaðir hafa
verið i Skipasmíðastöð
Iiafnarfjarðar.
nýlegt og hét Max Pemberton. Sumarið eft-
ir fór ég norður á Leirhöfn og skoðaði
skipið, og upp úr þeirri ferð festi ég kaup
á því, þar sem það stóð, ásamt bræðrunum
Vilhjálmi og Jónasi Þór. Upp úr því hóf
ég tilraunir með að ná því af strandstaðn-
um. Tækin, sem ég hafði þar norður frá
við þetta starf, voru bágborin, aðeins tvær
lélegar dælur, og enginn var þar kafarinn.
Meða aðstoð varðskipanna Þórs og Ægis
tókst að ná skipinu á flot. Þessi skip að-
stoðuðu svo við að draga togarann til Ak-
ureyrar og síðar til Reykjavíkur. Alla leið-
ina til Akureyrar var mannhæðar-djúpur
sjór i skipinu stafna á milli. Enda lcom í
ljós við skoðun á Akurcyri, að víða sá út
í gegnum botn skipsins. Sennilega hefur
togarinn flotið á vatns- og olíutönkum, sem
inni í honum voru, káetubotninum o. fl.
Þegar til Reykjavíkur kom, seldum við
Halldóri í Háteigi Max Pemberton fyrir 55
þúsund krónur.
Skömmu eftir að ég kom úr Sléttuför
minni, bauð li.f. Kveldúlfur mér viðgerð á
togaranum Agli Skallagrímssyni, og tók ég
því boði. Með því verki ætla ég að hefjist
viðgerðir að nokkru ráði á togurum á ís-
landi. Þetta verk leiddi til þess, að ég starf-
aði hin næstu ár eingöngu við viðgerðir á
togurum í Reykjavík og Hafnarfirði. Hittist
þá svo á, að á þessum tíma féllu ýmsir tog'-
arar undir tólf ára klössun. Vegna síld-
veiðanna, sem margir togarar stunduðu um
þessar mundir, þótti nauðsynlegt að setja
nýja lest með hreinsilúgum. Var slík lest
fyrst gerð í Arinbirni hersi (nú Faxa). Slík-
ar lúgur þekktust ekki áður. í sambandi við
þetta má geta þess, að þegar farið var að
hreyfa við tréklæðningunni inni í lestun-
um, kom í ljós, að við fastaþilin, milli skilja,
var lag af síldargrút um 1 metri á hæð, og
kom fyrir, að þar væru heilar síldar innan
um. Einnig bar það við, að slagvatnið úr
skipsbotninum, sem oft var blandað grút,
færi upp eftir skipssíðunum. Það var því
síður en svo árennilegt að geyma ísfisk eða
saltfisk í slíkum lestum, enda átti nú með
nýju lestunum að setja undir lekann. —