Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1951, Side 37

Ægir - 01.01.1951, Side 37
Æ G I R 31 Reknetjaveiái sunnama nds 1950. Reknetjaveiðar hófust að þessu sinni sunnanlands í ágústmánuði, og stunduðu fáir bátar veiðina framan af og lögðu afl- ann á land til frystingar og söltunar. Um mánaðamótin ágúst/september var sýnilegt, að síldveiðin við Norðurland mundi bregðast algerlega, og sneru margir bátar sér þá að reknetjaveiðum syðra. Fjölg- aði bátunum ört, og stunduðu 165 bátar rek- netjaveiði, þegar þátttakan var mest. Veiði mátti heita góð, þó að dagamunur væri um aflabrögðin. Fer þessi reknetjavertíð langt fram úr aflamagni fyrri ára. Gæftir voru yfirleitt góðar. í nóvember hættu flestir að- komubátar vciðum, en allmargir bátar stunduðu veiðar fram að jólum. Síldarsöltun bófst í ágústmánuði, og var benni haldið óslitið áfram fram að miðj- um desember. Saltað var í 131 708 tunnur, scm skiptast á þessa staði: Stöðvar Tunnur Vestmannaeyjar.......... 3 8 669 Þorlálcshöfn ............... 1 296 Grindavík .................. 6 15 690 Hafnir ..................... 1 1 152 Sandgerði .................. 3 20 245 Garður.................. 1 1 611 Keflavík og Njarðvíkur ... 9 35 475 Vogar....................... 2 669 Hafnarfjörður og Kópavogur 7 18 042 Reykjavík .................. 6 7570 Akranes .................... 3 22 289 Alls 42 131 708 fara? Annar lil Revkjavikur, hinn til Dal- víkur. En svo voru það hinir bátarnir, þeir voru 31, og hvers konar bátar A’oru það? Það voru allt litlir bátar, flestir trillubátar, 1% —4 rúmlestir, er hafa verið seldir víðs veg- ar um land. Eg spurði, hvort þeir Iiefðu alltaf haft nægilegt að gera, síðan þeir byrjuðu. Jú, svo hafði það verið. Þeir vinna sex að stað- aldri, en á vorin, þegar mest er að gera, eru þeir níu. Reynslan væri sú, að útgerðar- menn réðu svo seint við sig, hvort þeir ætl- uðu að fá nýja hringnótaháta, og af þeim ástæðum gæti Bátasmíðastöð Breiðfirðinga aldrei sinnt öllum pöntunum í tæka tíð fyrir sildarvertið. Ég spurði, hvort ekki væri fleira, sem vert væri að minnast á. Jú, Hvaleyrartjörn- ina, og um leið litu þeir út um gluggann í átt til hennar. Hvað er með hana? Ja, við álítum, að þar sé heppilegur staður fyrir þurrkví. -— Já, einmitt það, varð mér að orði og leit út um gluggann. Eg þakkaði Breiðfirðingunum síðan fyrir greið svör og kvaddi með handabandi. Á leiðinni inn eftir varð mér litið til tjarnarinnar. Var það svo ólíklegt, að þar kæmi þurrkví, hafði ekki margt skeð frá- leitara? Er ekki með degi hverjum verið að fitja upp á nýja prjóna? Og um leið og þetta fór um hugann þaut vörubíll fram hjá með mjólkurbrúsa á pallinum. Hann staldraði við frystihúsið hans Flygenrings og var þar enn, er för minni var þangað komið. Bílstjórinn, gamall kunningi minn, opnaði hurðina á bílnuin og bauð mér að setjast inn. Hann sagðist hafa verið að flytja mjólkina í frvsti. Ég spurði, livort borið væri hjá Lýsi og Mjöl h.f., því að þaðan hafði bíllinn komið. Jú, þar var borið og gripirnir komnir í góða nyt, fullur hrúsi af fiskgalli á dag. Það er sagt prýðismeðal við gikt eða efni í slíkt meðal. — Segi menn svo, að ekki sé fitjað upp á nýja prjóna.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.