Ægir - 01.03.1979, Side 10
Fiskeldi-
stóriðnaður framtíðarinnar á
fslandi
í þetta blað rita nokkrir sérfræðingar um fiskeldi
og fiskrækt. Á undanförnum árum hefur gætt
nokkurrar stöðnunar í þessum málum hér á landi,
þrátt fyrir að margir einstaklingar hafi unnið
ötullega að þessum málum. Nokkrum fiskeldisstöðv-
um hefur verið komið á fót af einstaklingum.
Má í þessu sambandi nefna stofnun eldisstöðvanna
við öxnalæk í ölfusi, og Laxamýri í Norður-
Þingeyjarsýslu. Þá hafa Jón Sveinsson og margir
fleiri einstaklingar unnið að tilraunum á þessu
sviði. Af opinberri hálfu hefur tilraunastöð
ríkisins í Kollafirði verið rekin um nokkurt árabil,
en því miður hefur ekki fengist fé til að stöðin
geti einbeitt sér að tilraunum eingöngu, heldur þarf
stöðin að selja árlega ákveðið magn af laxaseiðum
til að tryggja rekstur sinn. Þannig hefur ekki verið
hægt að stunda tilraunastarfsemi sem skyldi, auk
þess sem eigendur annarra eldisstöðva eru mjög
óánægðir með að fá þannig samkeppni frá opinberri
hálfu um seiðamarkað sem þegar er mettaður.
Um nokkurt skeið hefur verið starfrækt tilrauna-
verksmiðja með íslenskt fiskafóður. Rekstur þessa
fyrirtækis fór nokkuð vel af stað, en ýmis vandamák
sem upp komu urðu til þess að rekstur verksmiðj'
unnar lognaðist út af. Nú hafa þessi vandaniál
að mestu leyti verið leyst og samanburðartilraunir
með íslenskt og útlent fiskafóður sýna jafnvel
mikla yfirburði íslenska fóðursins. íslenskt fiskeld'
verður að byggjast á íslensku fóðri. Erlend fóður-
gerðarfyrirtæki breyta framleiðslu sinni án vitundar
kaupenda, og geta þannig beint og óbeint breytt
gæðum seiðanna, og þá um leið niðurstöðum til'
rauna. fslenskt fiskafóður ætti að geta orðið
ódýrara en erlent fóður, auk þess sem tilraunir
yrðu markvissari með notkun þess, þar sem alhr
þættir framleiðslunnar eru þekktir. Það er þvl
brýnt að bæði opinberir aðiljar og einstaklingar
taki höndum saman, þannig að unnt verði að hefja
aftur framleiðslu íslensks fiskafóðurs sem fyrst.
Á síðustu árum hefur borið nokkuð á sölutregðn
hjá eldisstöðvum, og má segja að markaðurinn
fyrir laxaseiði sé mettaður. Það er því augljóst
að ef fiskeldi á að þróast og verða atvinnugrein-
þarf að finna farveg fyrir nýjan seiðamarkað. Er Þa
einkum tvennt sem kemur til greina, annað hvod
sjóeldi, eða hafbeit í stórum stíl. Dr. Donaldson
sem er einn af frumherjum á sviði fiskeldis og fisk"
ræktar var hér á ferð fyrir rúmu ári. Hann benti a
að hér á landi væri aðstaða til framleiðslu
sleppingar á milljónum laxaseiða. Vonandi tekst a
næstu árum að þróa hér á landi myndarlega11
laxeldisiðnað sem máli skiptir frá þjóðhagsleg11
sjónarmiði. Greinarflokkur sá er hér fer á eftjr
er nokkurs konar yfirlit yfirstöðu þessara mála hei
á landi, og er það ósk okkar að menn verði nokkn1
fróðari eftir lestur þeirra.
SKRISTJÁN Ó.
SKAGRIORDHH
Hólmsgata 4. Box 906. Rvík
126 — ÆGIR