Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1979, Síða 35

Ægir - 01.03.1979, Síða 35
mal komin upp. Hér skal ekkert um beint samband m'lli íslenska fóðursins og endurheimtu 1 árs seiða fullyrt, en óneitanlega er margt, sem bendir til Verulegs samhengis áður en hin umræddu vandamál ^°mu upp. Ennfremur liggur það ljóst fyrir, að tilraunaseiði frá 1972-1973 á íslensku fóðri skiluðu Ser frá 6,6% og upp í 14,8%, en þau seiði öll Y0ru að langmestu leyti alin á því fóðri (sbr. Árni saksson, Returns of Salmon to the Kollafjördur lsh Farm in 1974). Þetta eru væntanlega hæstu endurheimtur, sem fengist hafa á eins árs seiðum í ollafirði. Tilraunir til rannsókna á endurheimtum ax úr sjó (hafbeit) á Ewos fóðri hafa aðeins 'akmarkaða þýðingu, því Kollafjarðarstöðin veit e ki um samsetningu fóðursins, en hún breytist ra ari til árs eftir markaðsaðstæðum í fram- e'ðslulandinu og heilsufarsástandi seiða er ekki , t- Það er því miður lítið að byggja á rann- krium á Ewos-fóðri frá einhverju ári meðan menn vita ekkert um samsetningu eða eiginleika Pess. t>að er margt gott um það fóður að segja, en að ganga út frá því sem „standard" vöru er fraleitt. ísaksson: Hafbeit (Salmon Ranching) Inngangur Hafbeit er það kallað, þegar laxaseiðum er sleppt í sjó á ákveðnu þroska- stigi og þau látin vera sjálfala fram að kyn- þroska, en laxinn síðan veiddur á göngu sinni í þá á, sem honum var sleppt í. Atlantshafslax hentar vel til hafbeitar, þar sem hann hefur frábæra ratvísi ;, , ,' ar ser við eðlilegar aðstæður nálega eingöngu a á, sem honum var sleppt í. í k i hófst starfsemi Laxeldisstöðvarinnar st -° afirði, sem meðal annars hafði það á sinni „ö nuskrá að gera tilraunir með hafbeit. Fyrstu m 'l®nsej^unum var sleppt 1963. Þrátt fyrir það, að a frárennsli stöðvarinnar er inna við 0,5m3/sek, hafði fengist yfir 8% endurheimta tveggja ára gönguseiða árið 1966 og var þá ljóst að möguleikar til hafbeitar við ísland voru miklir. Grundvöllur hafbeitar við ísland Tvennskonar útfærsla á hafbeit hefur verið framkvæmd hérlendis. Annarsvegar slepping göngu- seiða í laxveiðiár til að auka veiði, hins- vegar slepping í kaldar framleiðslusnauðar ár, þar sem laxinn er tekinn í kistur og slátrað og seldur á markað. í sumum tilfellum er eldisstöð tengd slíku kerfi svo sem í Kollafirði, þar sem mikil- vægustu upplýsingar um endurheimtu laxaseiða hafa fengist. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós, að endurheimta íslenska laxins er mun hærri en í öðrum löndum við Norður-Atlantshaf. Sönnur hafa aðeins verið færðar á þetta á suðvestur- horni landsins, en laxamergðin í öðrum lands- hlutum bendir til þess, að þar gildi það sama. Fengist hefur yfir 20% endurheimta villtra göngu- seiða, en besta endurheimta eldisseiða í Kollafirði er milli 10 og 15%. Það eru fyrst og fremst þrjú atriði, sem þakka má þessa háu endurheimtu. í fyrsta lagi bann við laxveiði í sjó, í öðru lagi hátt hlutfall af eins árs laxi í sjó og að síðustu mikið magn af æti í sjónum umhverfis landið. A. Bann við laxveiðum. Árið 1932 samþykkti Alþingi lög sem bönnuðu laxveiði í sjó með öllum veiðitækjum. Undanþegin voru nokkur býli sem höfðu laxveiði sem hlunnindi í fasteignamati. Veiði þessara netalagna er í dag um 1% af heildarveiði lanasmanna. B. Magn eins árs lax. Rúmlega 50% allra laxa sem veiðast á íslandi eru eitt ár í sjó og eru um 2,5 kg að þyngd. Þeir halda sig nær landinu heldur en laxar sem eru lengur í sjó og fást því aldrei í úthafsveiðum annarra þjóða. Verulegur munur virðist vera á hlutfalli eins árs lax eftir landshlutum. Á Norðausturlandi, þar sem um 25% allra laxa veiðast er hlutfall eldri laxa mjög hátt eða um 60%. Á Suður og Vestur- landi þar sem megnið af laxinum veiðist er hlut- fall eins árs laxa yfir 60%. C. Ætismagn. Gera má ráð fyrir að verulegur munur sé á æti laxa eftir því hvar þeir halda sig í hafinu. Eins ÆGIR — 151

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.