Ægir - 01.03.1979, Page 42
Hjálmar Vilhjálmsson, Vilhelmína Vilhjálmsdóttir
og Eyjólfur Friðgeirsson:
Fjöldi og útbreiðsla
fiskseiða í ágúst 1978
í ágústmánuði s.l. fór fram hin árlega könnun
á fjölda og útbreiðslu fiskseiða við ísland, Austur-
Grænland og í Grænlandshafi. Hafa slíkar kannanir
verið gerðar á sama árstíma á hverju ári síðan
1970. Að vanda beindust rannsóknirnar einkum að
seiðum þorsks, ýsu, loðnu og karfa, en upplýsingar
fást einnig um seiði ýmissa annarra fisktegunda.
Rannsóknaraðferðir voru svipaðar og áður, en
þeim hefur verið lýst m.a. í Ægi.
Rannsóknimar í ár voru framkvæmdar á r/s Árna
Friðrikssyni og r/s Bjarna Sæmundssyni og var
verkaskipting eftirfarandi:
Skip Timabil Svœði
Árni Friðriksson 9.-31. ágúst V-, N- og A-land.
Bjarni Sæmundsson 9.ág-2. sept. SA-, S- og SV-land,
Grænlandshaf, Dohm-
banki og A-Grænland
158 — ÆGIR