Ægir - 01.03.1979, Page 43
Rannsóknarsvæðið, sjórannsókna- og togstöðv-
dr °g leiðarlínur eru sýndar á 1. mynd. Náðu
athuganir til þeirra svæða sem áætlað hafði verið,
aema hvað takmarka varð nokkuð yfirferð við
land og í SA-Grænlandshafi vegna langvarandi
ohagstæðs veðurs.
A hinum íslenska hluta svæðisins voru gerðar
e ðbundnar sjórannsóknir á fyrirfram ákveðnum
stöðum. Þar var einnig mæld framleiðni plöntu-
gróðurs, þó þær athuganir séu ekki ræddar hér.
Á öðrum hlutum yfirferðasvæðisins takmörkuðust
sjórannsóknir að mestu við hitamælingar.
Danska stjórnin veitti góðfúslega leyfi til rann-
sókna á grænlenska hluta svæðisins.
Leiðangursstjórar voru Eyjólfur Friðgeirsson og
Hjálmar Vilhjálmsson á Árna Friðrikssyni, en
Vilhelmína Vilhelmsdóttir á Bjarna Sæmundssyni.
Dr. Svend-Aage Malmberg sá um úrvinnslu á
gögnum sjórannsókna og túlkun þeirra.
Ástand sjávar
Um miðjan ágúst 1978 var ísröndin aðeins
15-25 sjómílur úti af Vestfjörðum, en í lok mánaðar-
ins var ísinn alveg horfinn aftur af þessum slóðum.
Fyrir allri austurströnd Grænlands sunnan Græn-
landssunds var nær íslaust og svipað og 1977, sem
er hagstæðara en í meðalári á þessum almennt ís-
minnsta tíma ársins.
Hitastig sjávar í Grænlandssundi og umhverfis
ísland í ágúst 1978 er sýnt á myndum 2.-4. á 20,
s-
' '—■"
ÆGIR — 159