Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1979, Blaðsíða 17

Ægir - 01.10.1979, Blaðsíða 17
Verður staðið og ekki sízt hvernig af stað verður iarið. Ég ætla ekki að teygja lopanna um þetta frekar, Pott margt mætti enn segja um kost og löst á veiði- eyfum, en ætla að lokum að varpa fram til um- ræðu hugmynd um stjórnkerfi fyrir fiskveiðarnar, Par sem beitt væri fjárhags- og verðlagsaðferðum j!1 að letja eða hvetja til sóknar eftir ástandi i^kstofna. ^•nræðuhugmynd um stjórnkerfi. Við úthlutun veiðileyfa þarf mismunandi að- erðir eftir fiskstofnum og ekki eingöngu eftir því v°rt stofninn er ofnýttur eða vannýttur, sem um er JaUað. Byggðasjónarmið skipta hér miklu máli, eir>kum í upphafi. Ef til vill mætti skipta fiskstofnum í tvennt eða Þrennt eftir útgerðarháttum (ekki eftir líffræði). skipt á landshluta eftir mikilvægi fiskveiða, veiða og vinnslu, á undanförnum árum frá atvinnu- og framleiðslusjónarmiði. Síðan væru þau afhent einstökum veiðiskipum/fyrirtækjum, á líkan hátt og lýst var hér áðan fyrir landsstofnana. Heimild til framsals slíkra leyfa væri þó bundin við landshluta. f fyrstu ef til vill við þrengra svæði, ef með landshluta væri til dæmis átt við kjör- dæmi. Síðar mætti losa um þessa „átthaga- fjötra“, því væntanlega leiðir reynslan í ljós að í því felst engin hætta. Skipum myndi smám saman fækka í heild og útgerðarhættir breytast. Allt tæki þetta tíma en stefndi að því að taka hæfilegan afla með minni tilkostnaði. Með héraðsstofnana yrði farið líkt og nú, en leyfin þó gerð framseljanleg innan héraðs með sömu kvöðum og lýst var um lands- og landshluta- stofnana. a) Landsstofnar, þar sem ekki eru sterk bönd milli útvegs og vinnslu. Stærstu skipin landa víðsvegar en ekki fyrst og fremst í heimahöfn. Hér er auðvitað fyrst og fremst um veiðar uppsjávarfiska að ræða, síldar og loðnu. b) Landshlutastofnar, þar sem tengsl útgerðar við vinnslustaði eru rík. Skipin landa yfirleitt í heimahöfn eða nágrannahöfnum, þegar jafna þarf afla milli staða. Þetta eru veiðar botn- fiska fyrst og fremst og þorskurinn auðvitað mikilvægastur. c) Héraðstofnar, þar sem þessi bönd eru enn sterkari og stofnarnir beinlínis staðbundnir, eins og skelfiskveiðar og rækjuveiðar. Taka verður tillit til þessara mismunandi út- ®erðarhátta, þegar leyfakerfi er ákveðið. Lyrir landsstofnana mætti í fyrstu úthluta leyfum an endurgjalds til veiðiskipa, sem veiðarnar hafa stundað, eftir líkum reglum og gilt hafa um leyfi lll síldveiða með hringnót en gera þau framseljan- leg innan leyfishafahópsins að fengnu samþykki skipverja og að því tilskildu, að aflahlutur sé Sreiddur af andvirði seldra leyfa. Ef til vill mætti nugsa sér, að upphafleg úthlutun leyfanna réðist a5 aAasæld skipstjóra á síðustu vertíð eða ver- J'ðum að nokkru eða öllu leyti. Leyfi væru veitt aEveðnum fjölda skipa til nokkurra ára í senn. pflahámark á hvert skip yrði ákveðið sérstak- lega fyrir hverja vertíð. eyfum til veiða á landshlutastofnum yrði fyrst En hvar á að byrja? Heppilegast virðist að byrja á síldveiðileyfum strax í haust, þar sem sóknin hefur verið allt of dýrkeypt. Bæta mætti við leyfrn, sem veitt hafa verið, að þau megi framselja á þennan hátt. Að undanförnu hafa verið veitt síldveiði- leyfi til hringnótabáta til veiða á ákveðnu magni á hverri vertíð og hefur jafnmikið komið í hlut hvers báts. Leyfin hafa að flestra dómi verið miklu fleiri en þyrfti til að ná leyfilegum hámarksafla á réttri stund og stað til þess að hann nýttist sem bezt í vinnslu. í fyrra voru veitt 94 leyfi, þar sem hverju skipi var í upphafi leyft að veiða 210 tonn af síld haustið 1978. 84 skip stunduðu veiðarnar og leyfður hámarksafli varð á endanum 240 tonn á skip. Sum þeirra náðu sínum skammti fljótt, önnur voru lengi að ná aflanum og eyddu til þess miklum tíma og olíu. Einhver brögð munu hafa verið að því, að áhafnir og nætur gengu milli skipa, sem í raun og veru felur í sér eins konar framsal á veiðileyfi. Væri slíkt framsal heimilt gegn gjaldi mundu eflaust einhverjir útgerðarmenn sjá sér hag í að selja leyfið og snúa sér að öðru. Væntanlega yrði þetta fyrst hagræðing innan fyrirtækja, sem eiga fleiri en einn síldveiðibát og sæju sér hag í að sleppa því að búa alla til síldveiða, án þess að missa af afla, sem ef til vill er saltaður hjá söltunarstöð í heimahöfn. Viðbót við síldveiðileyfisbréfm, þar sem ráð væri fyrir því gert að þau mætti framselja öðrum leyfis- hafa að fengnu samþykki skipverja og að greiddum aflahlut af andvirði leyfis, virðist á engan hátt geta skaðað leyfishafa, en kynni að vera vísir að valfijálsari leið til þess að draga úr sóknar- ÆGIR — 589
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.