Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1979, Blaðsíða 19

Ægir - 01.10.1979, Blaðsíða 19
Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar: Hvalveiðar íslendinga °g Alþjóðahvalveiðiráðið Á undanförnum árum hefur átt sér stað veru- e8 alþjóðleg umræða um hvalveiðar í heiminum °8 áhrif þeirra á hina einstöku hvalstofna. Ástæða Pess er sú að eftir siðar heimsstyrjöldina hafa margir st°fnar látið stórlega á sjá, sérstaklega hvalstofn- arn*r í Suðuríshafinu. Það er mitt álit og margra sem til þekkja, að 'PJóðahvalveiðiráðið hafi á sínum tíma brugðist PVl hlutverki sínu að tryggja skynsamlega nýtingu Þes: að sara stofna. Um margra ára skeið hafði ráðið engu aðvaranir fiskifræðinga og það var því Jhiður ekki fyrr en að endalok steypireyðar- og angreyðarstofnanna í Suðuríshafi blasti við að ekið var í taumana. Árið 1965 var steypireyðin jriðuð og sama ár var hnúfubakur einnig al- ,r*ðaður að undantekinni örlítilli veiði Grænlend- lnga og íbúa eyjarinnar Tonga í Kyrrahafi. , Áfstaða Alþjóðahvalveiðiráðsins til ráðlegginga y'sindamanna hefur gjörbreyst á undanförnum arnm og ég þekki enga þá fiskveiðinefnd alþjóðlega heiminum í dag þar sem jafndyggilega er farið ráðum vísindamanna, en ég mun víkja nánar ð þessu seinna í erindi minu. . Því miður einkennis saga hvalveiðanna í heim- nnm að miklu leyti af fégræðgi og fyrirhyggju- ysi þótt frá því séu nokkrar athyglisverðar ndantekningar svo sem hvalveiðar okkar íslend- 8a. f>ag værj vej ef o^kur auðnaðist að stjórna ?Um öðrum veiðum okkar á sama hátt. la Árið 1883 hófu Norðmenn hvalveiðar hér við ■ en því miður hjuggu þær veiðar það stórt skarð steypireyðar- og langreyðarstofnana að þeir hafa 1 ennþá náð sinni upprunalegu stærð. v Ástæða þess að Norðmenn hófu hvalveiðar hér °ru margvíslegar. Fiskimenn í Finnmörku voru andsnúnir veiðunum, en það var ekki af s'JriJðunarástæðum, heldur töldu þeir að þær Pl ltu mjög öllum fiskveiðum. Reynslan hefur sýnt að þetta á ekki við rök að styðjast. Hval- föngurum var gert erfítt fyrir á ýmsan hátt og reksturinn gekk því illa, m.a. vegna minnkandi veiði. Fyrsta stöð Norðmanna hér á landi var við Álfta- fjörð og hét sá Thomas Amlie er veitti henni forstöðu. Hinn kunni hvalamaður Svend Foyn, sá sem fann upp hvalskutulinn og gjörbreytti þannig allri tækni við hvalveiðar, ætlaði að vera með Amlie, en vegna ósamkomulags við yfirvöld hér hætti hann við allt saman. Hér við land var einnig um að ræða algjörlega ónytjaðan stofn, sem miðað við reynsluna frá Finnmörku, hlyti að gefa góðan arð. Á eftir Thomas Amlie komu bræðurnir Hans og Andreas Ellefsen og reistu í önundarfirði árið 1889 stöð sem stærst var í öllu Norðuratlantshafí á sínum tíma og gerðu þeir út 5 hvalbáta. Tvö önnur hvalveiðifélög bættust síðar við. Hér er ekki viðlit að rekja á nokkurn hátt sögu norsku hvalveiðanna við ísland, en þæreru ákaflega lærdómsríkar og skýrt dæmi um það hvernig ótak- mörkuð sókn megnar að eyða blómlegum dýra- stofnum á nokkrum árum. Upplýsingar um einstakar tegundir í veiðinni eru af mjög skornum skammti, en fyrstu árin var mikið um steypireyð í aflanum. Á árunum 1889-1900 fengust t.d. í stöð Ellefsens í önundarfírði 1296 steypireyðar, 732 langreyðar, 17 sandreyðar og 126 hnúfubakar. Undir lok aldarinnar var afli greinilega farinn að tregast og aldamótaárið flutti Ellefsen stöð sína til Mjóafjarðar og brátt komu fleiri á eftir. Þessi nýju veiðisvæði juku nokkuð heildarveiðina og árið 1902 náði veiðin algjöru hámarki, en þá fengust samtals 1305 hvalir. Það ár stunduðu 30 bátar veiðarnar, en aðeins 8 bátar árið 1891. Eftir þetta fór að halla undir fæti. Árið 1912 stunduðu um 20 bátar veiðarnar, en aflinn á bát ÆGIR — 591
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.