Ægir - 01.10.1979, Blaðsíða 46
þróun í gerð og búnaði fiski-
skipa hérlendis undanfarna þrjá
áratugi en lítið hugað að því sem
framundan er. Nú er mikið rastt
um stjómun fiskveiða og má ætla
að þá fylgist að einnig betri
stjórnun á uppbyggingu fiski-
skipaflotans.
Einn er sá þáttur sem stór-
lega hefur verið vanræktur í ís-
lenzkum sjávarútvegi, en það em
rannsóknir og athuganir á fiski-
skipum og búnaði þeirra. ís-
lenzkir sjómenn hafa gjarnan
þótt fljótir að tileinka sér nýj-
ungar, sem komið hafa, og þeir
búa yfir mikilli reynslu, sem
miklu betur mætti virkja en gert
hefur verið. Oft á tíðum hafa
þeir þurft sjálfir að standa í til-
raunum og fengið takmarkaða
aðstoð. í þeim fáu athugunum
sem Tæknideild Fiskifélags ís-
lands hefur gert um borð í fiski-
skipum, er reynslan sú, að skip-
stjórnarmenn eru fúsir til sam-
starfs á þessu sviði, og út úr
slíkri samvinnu ættu að geta
komið nýtilegir hlutir.
Það hlýtur að vera umhugs-
unarefni hve fáir innlendir verk-
fræði- og tæknimenntaðir menn
hafa starfað við hönnun skipa
fram til þessa. Þannig hefur mikil
tæknivinna verið unnin erlendis,
og jafnvel þótt byggja þyrfti
(eða breyta) hluta fiskiskipa erl-
endis á sérhverjum tíma, þá ætti
málum að vera þannig fyrir
komið að hönnunarvinna væri
unnin af íslenzkum aðilum, ÞV1
þeir ættu að vita betur hvað hentar
íslenzkri útgerð, sem óneitanlega
er nokkuð sérstök.
Leiðrétting:
í vinnslu síðasta tölublaðs
Ægis urðu þau mistök í 2. hluta
þessarar greinar, að neðsta hna
fremsta dálki á bls. 546 féll niður-
Viðkomandi setning á að vera
þannig:
Segja má að það hafi einkunr
verið þau útgerðarfyrirtæki, seni
áður höfðu stundað togaraútger >
sem réðust í kaup á þessum skip
um og þau miðuð við að geta sótt
á fjarlægari mið og a.m.k. ha s
mánaðar veiðitúra.
Afmæliskveðja
Ragnar Jakobsson 75 ára
Þann 18. marz sl. varð Ragnar
Jakobsson, starfsmaður hjá Fiski-
félagi íslands, 75 ára en hann er
fæddur á ísafirði 18. marz 1904.
Hann er sonur hjónanna Jakobs
Guðmundssonar trésmiðs frá Æðey
og Kristínar Rósinkransdóttur
frá Tröð í önundarfirði.
Ragnar ólst upp á Flateyri við
Önundarfjörð. Hann stundaði
nám í Núpsskóla veturinn 1921
til 1922 og í Verzlunarskóla
Islands veturinn 1922 til 1923.
Hann var starfsmaður við Kaup-
félag önfirðinga frá 1919 til 1939
að undanskildum námsárum.
Hann hóf útgerð í félagi við aðra
frá Flateyri um 1924. Þegar hann
hætti störfum hjá kaupfélaginu
hóf hann fiskverzlun og var hann
fyrstur fiskkaupmanna á Flateyri
til þess að greiða fyrir fisk, og
starfsfólki sínu kaup, með pen-
ingum. Áður voru öllfiskkaupog
verkalaun í reikningsviðskiptum.
Á árinu 1942 stofnaði hann í fé-
lagi við aðra fyrirtækið ísfell hf.,
sem rak umfangsmikla útgerð og
fiskvinnslu og veitti hann því for-
stöðu til ársins 1954 er hann flutt
ist til Reykjavíkur. Þar keyp11
hann hluta í heildverzlun, se^
hann starfaði við til ársins 19 ’
en þá hóf hann störf hjá Fiski e
lagi íslands, þar sem hann star ar
enn, einkum að framleiðslu-
birgðaskýrslum, svo og samante'
bráðabirgðaskýrslna um afla. A
eru þetta þýðingarmikil stöt'
Ragnar er hinn prýðilegasti ver
maður, samvizkusamur og ar
vakur í starfi.
Á Flateyri gegndi R3®0^
margvíslegum trúnaðarstörfu ,
fyrir sveit sína og sat nt.a-
hreppsnefnd í mörg ár. Han
hefur alla tíð verið mikill áhugu.
maður um bindindismál og _
Flateyri starfaði hann mik'
Góðtemplarareglunni.
Ragnar Jakobsson kvse,n 1
árið 1933 Margréti Jónsdótt .
frá Eyri í Seyðisfirði og eignu u ^
þau fjóra syni og eru þrír þeirra
lífi.
Stjórn og starfsfólk Fisk1^
lagsins ámar honum og Öö}^^ea.
hans heilla og góðra lífdag
618 — ÆGIR