Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1979, Side 63

Ægir - 01.10.1979, Side 63
Dráttarvextir skulu vera 2% fyrir hvern mánuð e^a brot úr mánuði. Ollum þeim, er lán fá að fjárhæð kr. 500.000 eða sem falla undir lánaflokka, sem taldir eru * ®~lið 2. gr. reglugerðarinnar, skal skylt að taka 5 hundraðshluta lofaðrar fjárhæðar að láni úr Pessum flokki. Greiði lántakendur aukaafborgun af lánum úr Pessum flokki ber þeim jafnframt að greiða hlut- aUslega sömu aukaafborgun af þeim lánum, sem Samhliða voru veitt úr öðrum lánaflokkum. Gjalddaga, vexti, dráttarvexti og lántökugjöld ^ lánum úr þessum lánaflokki ákveður stjórn 'skveiðasjóðs hverju sinni og fer um þau atriði þeim vísitölutryggðu lánum, sem sjóðurinn e!ur til endurlána hverju sinni. Lánsskilyrði samkvæmt þremur síðustu máls- 8remum hér á undan skulu þó aðeins taka til lána, Sern veitt eru eftir 1. nóvember 1974. Frá og með 10. febrúar 1978 gildir eftirfarandi Urn þennan lánaflokk: a) Flokkur þessi er til endurlána á vísitölu- tryggðum lánum, svo og til verðtryggingar opinberra framlaga, tekjustofna og eigin afla- Qár, sem sjóðnum verður handbært hverju sinni. L) öllum lántakendum sem loforð fá eða hafa fengið um lán, sem falla undir lánaflokka sem taldir eru í 2. gr. og 9. gr., annan en þann sem talinn er í 9. tölulið A-liðar 2. greinar, skal skylt að taka þann hundraðshluta lof- aðrar fjárhæðar að láni úr þessum flokki, sem stjórn Fiskveiðasjóðs ákveður hverju sinni. Skal stjórnin hverju sinni ákveða hundraðs- hluta þennan sérstaklega fyrir skipalán og sér- staklega fyrir fasteignalán. c) Lán úr þessum flokki eru alltaf veitt samhliða Öðrum lánum og skal það vera aðalregla að þau séu til jafnlangs tíma og samhliða lánin. Fó er heimilt að hafa lánin úr þessum flokki til skemmri tíma og verða þá afborganir af sam- hliða láninu lægri þann tima, þannigað heildar- lánsfjárhæðin endurgreiðist með jöfnum af- borgunum á heildarlánstímanum miðað við upphaflegar fjárhæðir lánanna. ^) Til viðbótar hverri einstakri greiðslu vaxta og afborgunar af lánum úr þessum flokki skal lántakandi greiða á hverjum gjalddaga, eða greiðsludegi, sé hann síðar, verðuppbótt af vaxta- og afborgunargreiðslu lánsins, er miðast við hækkun byggingarvísitölu frá lántökudegi til greiðsludags. Lækki byggingarvísitalan niður fyrir þann stigafjölda, er gilti við afgreiðslu lánsins, skulu greiðslur vaxta og afborgana fara fram á nafnverði. Miðað er við byggingar- vísitölu þá, er kveðið er á um í lögum nr. 93/1975 og síðari breytingar, er á henni kunna að verða gerðar. e) Heimilt er að greiða aukaafborgun af lánum úr þessum flokki á gjalddögum lánanna, enda sé tilkynnt um slíka ákvörðun eigi síðar en 1 'A mánuði fyrir gjalddaga. Af slíkum aukaaf- borgunum greiðist sama vísitöluálag og greiða ber af hinum samningsbundnu endurgreiðslum lánanna. Greiði lántakendur aukaafborgun af lánum úr þessum flokki ber þeim jafnframt að greiða hlutfallslega sömu aukaafborgun af þeim lánum, sem samhliða voru veitt úr öðrum lánaflokkum. 0 Gjalddaga, vexti, dráttarvexti og lántökugjöld af lánum úr þessum lánaflokki ákveður stjórn Fiskveiðasjóðs hverju sinni. 8. gr. Stjórn Fiskveiðasjóðs hefur á árinu 1975 opnað nýjan lánaflokk vegna breytinga á skuldum sjávar- útvegs og fiskvinnslu úr lausaskuldum i lengri lán. Framkvæmd lánveitinga úr þessum flokki skal vera á þann veg, að viðskiptabankar lántakenda geri tillögur,um fjárhæð veðskuldabréfa sem þeir taka við af viðskiptamönnum sínum, ef stjórn Fiskveiðasjóðs fellst á kaup bréfanna. Við ákvörðun lánveitinga verði tekið mið af stöðu og lausaskuldum lántakenda. Lánveitingar vegna lausaskulda utan bankanna skulu ákveðnar sérstak- lega og miðast heildarfjárhæð þeirra við það fé, sem til þeirra er ætlað úr Gengishagnaðarsjóði og endurgreiðast lán þessi á 2 árum. Lán vegna lausaskulda innan bankanna endur- greiðast að jafnaði á fimm árum, en geta í sér- stökum tilvikum verið til lengri tíma, þó aldrei til lengri tíma en tíu ára. Lán úr þessum flokki skulu tryggð með fyrsta eða fyrsta samhliða veðrétti í fiskiskipum eða með veði í atvinnuhúsnæði lántakenda innan við 60% af matsverði þess. Við veðsetningu skal þess gætt, að til tryggingar hverju skuldabréfi sé aðeins veð- sett eitt fiskiskip og/eða ein eða fleiri fasteignir sama aðila. Auk áðurgreindra veðtrygginga skulu viðkom- andi viðskiptabankar takast á hendur einfalda ÆGIR — 635

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.