Ægir - 01.10.1979, Síða 64
ábyrgð á skilvísri og skaðlausri fullnustu lán-
takenda við Fiskveiðasjóð.
Gjalddagar lána úr þessum flokki, skulu vera 1.
maí ár hvert.
Vextir af lánum úr þessum flokki skulu vera
16% ársvextir og greiðast þeir eftir á 1. maí ár hvert.
Hækki eða lækki almennir útlánsvextir, skulu
vextirnir breytast í samræmi við það.
Dráttarvextir skulu reiknast 1 /2% fyrir hvern
byrjaðan mánuð.
Af lánum úr þessum flokki skal greiða við
afgreiðslu 1% lántökugjald.
Fiskveiðasjóður skal Qármagna lánveitingar úr
þessum flokki með því að gefa út skuldabréf,
sem hann afhendir viðskiptabönkunum. Skulda-
bréf þessi skulu samanlagt verða jafnhá útlánunum
og til nákvæmlega jafn langs tíma og þau. Fisk-
veiðasjóður greiði þó aldrei af þeim bréfum, er
hann þannig gefur út, hærri fjárhæð í afborg-
anir og vexti, en hann hefur á hverjum tíma inn-
heimt af sjálfum útlánunum.
Gengið er út frá því, að Seðlabanki íslands
endurkaupi þau skuldabréf, er Fiskveiðasjóður
hefur samkvæmt ofanskráðu gefið út og afhent
viðskiptabönkunum og verða þau þá með sjálf-
skuldarábyrgð viðkomandi viðskiptabanka.
Allar lánveitingar og skuldabréfaskipti sem fjall-
að er um í þessari grein, fóru fram á árinu 1975 og
fyrri hluta árs 1976.
9. gr.
Stjórn Fiskveiðasjóðs er heimilt að opna nýjan
lánaflokk vegna kaupa á eldri fiskiskipum og mega
þau lán nema hæst % hluta kaupverðs eða mats-
verðs, þess er lægra reynist, og skulu þá með-
taldar eftirstöðvar af lánum sjóðsins, sem fyrir
kunna að vera.
Lán þessi ná einvörðungu til þilskipa (eik og stál)
12 rúmlesta og stærri, innan við 25 ára aldur.
Við lánsákvörðun skal liggja fyrir kaupverð
skipsins, vátryggingarvirðing og umsögn Siglinga-
málastofnunar ríkisins um ástand skipsins.
Lánin skulu tryggð með fyrsta veðrétti í skipinu.
Lengstur lánstími er 5 ár, en ákvarðast að
öðru leyti af aldri skipsins. Vextir af lánum þessum
skulu vera þeir vextir, sem stjórn Fiskveiðasjóðs
ákveður á hverjum tíma. Vextirnir greiðast eftir á,
tvisvar á ári og verða gjalddagar þeirra svo og af-
borgana 1. maí og 1. nóvember ár hvert.
öllum lántakendum, sem loforð fá um lán eða
hafa fengið úr þessum lánaflokki, skal skylt að taka
þann hundraðshluta lofaðrar fjárhæðar sem stjórn
Fiskveiðasjóðs ákveður hverju sinni með vísitöl^
tryggðum lánum.
Lántökugjöld er gilda um aðra lánaflokka sku
einnig gilda um lán úr þessum lánaflokki.
Þegar lán hefur verið veitt út á skip úr þessum
lánaflokki, skal eigi lánað út á það aftur fyrr
eldra lánið er greitt að fullu, og það afmáð úr ve
málabókum.
10. gr. .
Stjórn Fiskveiðasjóðs getur í hverju tilv1
áskilið, að erlent lán fáist vegna nýsmíði eða meifl
háttar endurbóta innanlands.
Um tilhögun slíkra lánveitinga fer eftir nánafl
ákvörðun sjóðsstjórnar.
1Lgr' .. m
Reglugerð þessi er hér með sett samkvæmt löguu
nr. 44 25. maí 1976, um Fiskveiðasjóð íslan 5
til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftir
breytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Ja1
framt er felld úr gildi reglugerð nr. 153 18. aprl
1978 fyrir Fiskveiðasjóð íslands um lánaflokka
reglugerð nr. 146 2. mars 1979, um breytingn
á reglugerð nr. 153 18. april 1978, fyrir FlS
veiðasjóð íslands um lánaflokka.
Sjávarútvegsráðuneytið, 1. júlí 1979.
Kjartan Jóhannsson.
Þórður Ásgeirsson■
Viðbót við 11. gr.
1. gr. . 0.
Aftan við 11. gr. reglugerðarinnar konii s
hljóðandi grein:
Frá og með 17. júlí 1979 skal stjórn Fiskvei ^
sjóðs ekki veita lán eða lánsloforð til sniíða e
kaupa á fiskiskipum frá útlöndum nema með sa
þykki sjávarútvegsráðuneytisins eða um sé að
lán til minni háttar breytinga á fiskiskipum ^
til þess að fjármagna eðlilegar verðhækkanir a a
samþykktum smíðasamningum.
2- 8r- nr 44
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum m ^
25. maí 1976, um Fiskveiðasjóð íslands til þesS ^
öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni ö u
þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegsráðuneytið, 17. júlí 1979-
Kjartan Jóhannsson.
Jón B. Jónsson-
636 — ÆGIR