Ægir - 01.11.1981, Qupperneq 34
út á nafn Arnbjarnar eins, þótt vitað sé, að það
voru mennirnir, sem hittust á Commercialhótelinu
sem keyptu skipið í félagi og lögðu fram fé til
kaupanna. Með hvaða samningi tryggðu þeir sig
gagnvart Arnbirni, sem þannig verður einn lögleg-
ur eigandi skipsins? Arnbjörn afsalar síðan um
sumarið skipinu til Fiskveiðahlutafélagsins og það
er ekki að efa löglegan rétt hans til þess, þó að sá
dráttur, sem á þvi verður bendi til að Fiskveiða-
hlutafélagsmenn hafi viljað sjá, hvernig gengi áður
en þeir bundust löglega i útgerðina. Kannski hafa
þeir Einar og Indriði viljað líka sjá hvernig tiltæk-
ist, og þess vegna sé Arnbjörn einn löglegur eig-
andi, og taki þá á sig skellinn fyrir þá alla, ef fyrir-
tækið fari á hausinn. Þetta er gamalt og nýtt fyrir-
komulag, þegar um tvísýn fyrirtæki er að ræða.
Þegar svo fyrirtækið reynist arðbært, þá vilja allir
eiga skipið.
Þessar bollaleggingar mínar eru auðvitað hald-
litlar, en samt er það klárt, að það er einhver
baráttusaga á bak við þessa endurvakningu Fisk-
veiðahlutafélagsins um sumarið. Það er ekkert sem
breytist nema Fiskveiðahlutafélagið verður lögleg-
ur eigandi. Skipið er áfram skráð i Hafnar-
firði og Einar áfram framkvæmdastjórinn og stór
hluthafi og hefur allan veg og vanda af útgerð
skipsins.
í Morgunblaðsgrein sinni segir Heimir, að Hafn-
firðingar og Reykvíkingar eigi að skipta með sér
heiðrinum af ,,fyrstu stórútgerð íslendinga“
(Undirstrikun er mín). Þetta er sögulega villandi
umsögn og undarleg frá sagnfræðingi, sem er að
glugga í sjávarútvegssögunni. Ásgeirsverzlun á ísa-
firði og Pétur Thorsteinsson á Bíldudal og Geir
Zoéga í Reykjavík gátu miklu fremur kallazt stór-
útgerðarfyrirtæki en Cootútgerðin.
Þá er það einnig sögulega villandi, að tala um
Hafnfirðinga og Reykvíkinga í þessu sambandi.
Arnbjörn var Rangæingur sem átti heima í Kefla-
vík, Guðmundur var úr Kjósinni og bjó í Garðin-
um, Indriði ofan af Kjalarnesi, Einar af Álftanes-
inu, Björn var Árnesingur og Þóður Guðmunds-
son af Skildinganesinu og í skipshafnarskránni er
ekki einn einasti maður sagður úr Hafnarfirði eða
Reykjavik.
Hafnarfjörður og Reykjavík voru sem óðast að
Jón forseti.
610 — ÆGIR