Ægir - 01.10.1982, Blaðsíða 52
Auðun Ágústsson og Stefán A. Kárason:
Tæknideild Fiskifélags íslands
Nýtni aflbúnaðar
NORDFORSK-samstarfsverkefni
/ framhaldi af umfjöllun í 4. og 9. tbl. Ægis
1982, veröur verkefnið ,,Nýtni aflbúnaðar “ kynnt
hér og gerð grein fyrir niðurstöðum þeirra mæl-
inga, sem gerðar hafa verið fram til þessa.
Inngangur:
Markmið þessa verkefnis er tvíþætt. Annars
vegar að mæla ,,eyðslustuðul“ véla frá hinum
ýmsu framleiðendum, við mismunandi álag. Hins
vegar að mæla olínotkun við mismunandi samspil
snúningshraða og skurðar skrúfu, miðað við sigl-
ingahraða.
í sambandi við aðalvélar skipa, er talað um
eyðslufrekar vélar og eyðslugrannar vélar, og er
ýmist átt við mun milli véla mismunandi framleið-
enda eða milli véla frá sama framleiðanda. Ekki
eru menn á eitt sáttir um hve mikinn mun hér er
um að ræða, og hefur Tæknideild því áhuga á að
skoða þetta mál nokkuð. Venjulega gefa framleið-
endur véla eyðslustuðul upp við fullt álag á vél en
yfirleitt við mismunandi snúningshraða. Þar sem
aðalvélar eru sjaldnast keyrðar undir fullu álagi, er
að okkar mati áhugavert að sjá hvernig stuðullinn
breytist með mismunandi álagi og á mismunandi
snúningshraða.
Ekki er vist að eyðslumunur véla mismunandi
framleiðenda, sem virðist í fljótu bragði vera til
staðar, sé eingöngu mismunandi eyðslustuðli um
að kenna. Verið getur að við vélar frá ákveðnum
vélaframleiðanda sé jafnan valinn skrúfubúnaður
frá sama skrúfuframleiðanda, en sá skrúfubún-
aður sé ekki notaður annars staðar, og þannig get-
ur komið fram munur sem alls ekki er háður vél-
inni sem slíkri. Það er því nauðsynlegt í þessu sam-
bandi að skoða vélbúnaðinn í heild.
Skiptiskrúfubúnaður er ákaflega þægilegur í
notkun enda er slíkur búnaður almennt um borð í
íslenskum fiskiskipum, nema þeim alminnS
Önnur hlið á þessum búnaði er sú, að með ho ^
er hætta á að óþarflega mikilli olíu sé eytt,
hefur því skiptiskrúfubúnaðurinn jafnvel ve
kallaður olíuþjófurinn. Þekkt er að olíueyðs ^
eykst við aukinn snúningshraða og minnkuu
skurði miðað við sama siglingahraða, en hv
mikið þetta er í reynd vilja menn sjá. Tækm
hefur í hyggju að mæla þetta samspil í y01
skipum, mismunandi að stærð og með mis
andi vélabúnað. , Qí
Ýmislegt af því, sem hér hefur verið drepið a, ^
fyrirhugað er að mæla, er einfalt að reikna ut^._
okkar reynsla er sú að menn trúa frekar tn ^
niðurstöðum en niðurstöðum fræðilegra utre .
inga sem viðkomandi þekkir hvorki haus ne sp
á. . þyí
í þessari kynningu verður gerð grein fyrir
hvernig að mælingum er staðið, mælitækjun1^ ^
mælitækni sem notuð er, og nokkuð fjaha ^
niðurstöður sem fengust í þeim tveim skipun1
mæld hafa verið.
556 —ÆGIR