Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 15

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 15
einnig varað við þeim hættulegu áhrifum sem verð- bólgan innanlands og þar afleiðandi kostnaðarhækk- anir hafa á samkeppnisaðstöðuna erlendis. Þarf ekki að orðlengja, að á þessu ári hefur heldur sigið á ógæfuhliðina í þessu efni, sérstaklega þegar þess er gætt, að ókleift er að flytja hina innlendu verð- bólgu út með hækkun markaðsverðs afurðanna. Nú má enginn halda, að erfiðleikar okkar ís- lendinga i þessu efni séu einsdæmi, þótt verðbólg- an hjá okkur setji ýmis formerki, þar sem hún er einsdæmi i þeim heimshluta sem við teljumst til og höfum langmest viðskipti við. Utgerðar- og fiskimenn og framleiðendur sjáv- arafurða annarra þjóða hins vestræna heims eru einnig í erfiðri stöðu. Hækkun afurðaverðs hefur yfirleitt ekki fylgt hækkun framleiðslukostnaðar, einkum verði á orku, en einnig vegna harðnandi samkeppni frá þjóðum þriðja heimsins. Sá er þó aðstöðumunur, að ýmsir keppinautar okkar njóta beinnar og óbeinnar opinberrar fyrirgreiðslu og styrkja, sem við höfum enganveginn efni á að greiða. En þrátt fyrir hinn opinbera stuðning er staða margra keppinauta okkar erfið, sem væntanlega raa þá rekja til þess, að þeir nýta hina opinberu fyrirgreiðslu að miklu eða öllu leyti til að halda niðri hráefnisverði og til undirboða á mörkuðum. A s.l. ári hlaut norskur sjávarútvegur um 1.400 milljónir norskra króna úr ríkisjóði, samkv. opin- berum norskum skýrslum, þar af fóru tæplega 600 milljónir til uppbóta á fiskverði. Meðalverð á þorski á A-strönd Kanada var á fyrstu 7 mánuðum þessa árs 36.6 kan. cent pr. kg. og hafði einungis hækkað um 0.2 cent milli ára. Þetta verð samsvarar ísl. kr. 3.08 pr. kg. ef notað er meðalgengi á þessu tímabili. Verð á síld, reiknað á sama hátt, var kr. 1.77 pr. kg. Nú er raunar lítið, sem við getum gert við þessu, annað en að reyna eftir bestu getu að hafa áhrif innan alþjóðasamtaka, sem hafa frjálsa alþjóða- verslun og eðlilega viðskiptahætti á stefnuskrá, þ-e. að reyna að ná fram alþjóðlegum samþykkt- um um hegðunarreglur i þessu efni. I því kreppuástandi, sem nú ríkir, stöðnun eða samdráttur þjóðartekna velflestra þjóða heims og aukið atvinnuleysi, hefur borið á vaxandi tilhneig- 'ngu til aukinnar verndar fyrir innlenda atvinnu- vegi, m.a. með auknum opinberum framlögum til atvinnuveganna, hækkun tolla o.þ.h. Nú þarf ekki að tiunda hér hvílíkt áfall það yrði sjávarútveginum og þar með þjóðarbúinu, ef þess- ara tilhneiginga tekur að gæta í rikara mæli gagn- vart viðskiptum með sjávarafurðir. í þessu efni verðum við því að halda vöku okkar. Jafnframt ber að forðast eftir mætti að við gefum á okkur höggstað m.a. með aðgerðum, sem túlka megi sem brot á samningsbundnum skuldbindingum okkar. Ekki er úr vegi í þessu sambandi að benda á að Kanadamenn sækja nú fast á Efnahagsbandalagið að lækkaðir verði þar innflutningstollar á kana- dískum fiskafurðum, eða a.m.k., að þeir sitji við sama borð og íslendingar í því efni. Þorskveiðar Kanadamanna það sem af er þessu ári hafa gengið samkvæmt áætlun og er um tölu- verða aukningu að ræða frá fyrra ári. Nokkur samdráttur hefur hinsvegar orðið á sildar- og karfaafla þeirra. Vegna erfiðleika margra kana- diskra fiskvinnslufyrirtækja var í auknum mæli horfið til þess ráðs, að selja fisk uppúr sjó, einkum þorsk, til portúgalskra og spánskra fisktökuskipa, þar sem fiskurinn er saltaður um borð. Hvað varðar þorskveiðar í Barentshafi eru horf- ur á næstu árum heldur dökkar. Alþjóðahaf- rannsóknaráðið hefur mælt með því við norsk og sovésk stjórnvöld, að dregið verði úr þorskafla á þessum slóðum um 100 þús. lestir á næsta ári. Einnig er mælt með nokkurri minnkun þorskafla í Norðursjó. Lánamál og afkoma. Því miður er sú skorinorða ályktun um lána- og afkomumál, sem samþykkt var á síðasta Fiskiþingi í fullu gildi. Ef nokkuð er, hefur fremur sigið á ógæfuhliðina en hitt. Nokkur samdráttur hefur orðið á afla á botnfiskveiðum að ógleymdri stöðv- un loðnuveiða. Þá má nefna erfiðleika á helstu mörkuðum, m.a. sökum óhagstæðrar verðlagsþró- unar. Meginástæðan felst þó í hinum innlendu verð- tryggðu hækkunum reksturskostnaðar þ.m.t. vinnulaun og því hve fyrirtæki eru vanbúin að mæta jafnvel minniháttar áföllum, sökum skorts á eigin lausafé, litlum eða engum varasjóðum, sem gera þau langtum um of eða jafnvel algjörlega háð óhagstæðum lánum, sem þó eru af skornum skammti, sökum minni sparnaðar almennt. Sparn- aður fyrirtækja hefur mjög dregist saman. Sparn- aður einstaklinga hefur og dregist saman, þótt ástæðan sé öðrum þræði önnur, sem sé ótti þeirra við áhrif verðbólgunnar á verðgildi sparifjár. ÆGIR — 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.