Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 26

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 26
leyfa meiri veiði en 400 þús. tonn af þorski, í stað 450 þús., sem aðrir gera tillögu um. Tillögur Hilmars eru í samræmi við samþykktir Fjórðungssambands fiskideilda á Austurlandi undanfarin ár. Rétt er að ræða nánar þetta álit og þau rök, sem Hilmar færir fyrir kvótafyrirkomu- lagi. í fyrsta lið er gert ráð fyrir að veitt verði 50 þús. tonnum minna af þorski en nú er leyft. Ef hrygningarstofninn þoli ekki þetta hámark skal taka mið af skoðunum fiskifræðinga. Helminga- skipti verði óbreytt milli báta og togara. Þá er i þriðja lagi lagt til að ákveðið verði aflahámark annarra botnfisktegunda. Gert er ráð fyrir kvótafyrirkomulagi jafnt á báta sem togara, og að ekkert skip megi veiða meira en ákveðna tonnatölu af þorski á ári og yrði þá stuðst við hugmyndir Vestmannaeyinga þar um. Þá leggur Hilmar til að stuðst verði við hugmyndir Jónasar Blöndal um ígildiskvóta og hverju skipi úthlutað ákveðnu hámarki af aflaeiningum. Jónas Blöndal lagði fram vel unnið umræðu- plagg um svonefnda igildiskvóta og fékk milli- þinganefndin það í hendur. Þetta innlegg Jónasar er áreiðanlega ítarlegasta skýring á því, hvernig er hægt að taka upp hugsanlegt kvótafyrirkomulag á botnfiskveiðum. Því er ekki að leyna að hugmyndir Jónasar um lausn á kvótakerfi sýna að um vandasamt verk er að ræða og erfitt að fullnægja öllu réttlæti. Þó skilst mér að með kvótakerfinu væri auðveldara að hafa stjórnun á fiskveiðunum, en með núverandi stjórnkerfi. Allar breytingar eru erfiðar í fyrstu og þær þurfa ekki allar að gerast í einu vetfangi. Tim- arnir breytast og mennirnir með. Við höfum þegar tekið upp kvótakerfi á veiðum nokkurra fiskteg- unda, vegna þess að það var óhjákvæmilegt. Fiskveiðiþjóðir eins og Norðmenn og fleiri þjóð- ir hafa stjórnað sínum veiðum með kvótafyrir- komulagi á skip til verndar fiskstofnum. Nú lýsa þeir því yfir sjálfir, að fiskveiðistefna þeirra muni bera góðan árangur. Fari þorskafli minnkandi, eins og margt bendir til í dag, þá verður að taka upp ákveðnari fisk- veiðistefnu en nú er í gildi. íslenska þjóðin er fá- menn og hún hefur sýnt það að hún hefur lært að búa við landið og hafið eins og það er. Það eyðist allt, sem af er tekið. Við verðum að fara að fiski- miðunum með gát. Dæmin um eyðinguna eru svo sláandi, þegar veiðigleði mannsins fær óhefta út- rás. Þessvegna eru allir sammála um, að það verði að stjórna öllum fiskveiðum í dag. Röksemdin um að aflasælustu mennirnir njóti sín ekki með kvóta- fyrirkomulagi er talin mikilvæg af andstæðingum kvótafyrirkomulags. Það er verið að gera lítið úr meðalmennskunni, en ætli það sé ekki svo, að flestir bæði á landi og sjó séu í þeim hópi og þeirra hlutur sé býsna drjúgur, þegar allt kemur til alls. Kvótafyrirkomulagið leiðir efalaust til betri meðferðar á afla og því meira verðmætis. Sóknin yrði ekki eins hörð og margskonar sparnaður t.d. i olíueyðslu skipanna. Ég hefi lengi verið þeirrar skoðunar, að það ætti ekki að veiða meiri fisk en íslendingar gætu sjálfir gert að útflutningsvöru. Það er ekkert vit í því að flytja inn erlent vinnuafl til fiskvinnslu. Það kemur líka að því að vinnutími hjá verkafólki við fisk- vinnslu í landi verði sambærilegur við annað starfsfólk. Þegar ber á því, að fólk vill fara í aðra vinnu en fiskvinnu vegna of langs vinnutima. Ef þessu væri framfylgt er stjórnun fiskveiða enn brýnni. E.t.v. hefi ég farið nokkuð út fyrir hið afmark- aða umræðuefni, sem er kosning og starf milli- þinganefndarinnar um það hvort ætti að taka upp kvótaskiptingu á næsta ári. Ég vona að Fiskiþing sem má teljast samnefnari þess fólks, sem við sjávarútveg fæst verði svo lánsamt að benda á ör- uggar leiðir til stjórnunar fiskveiða íslendinga með verndun fiskstofnanna að leiðarljósi. 14 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.