Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 33
tankinn hjá Nordsjösentret í Hirtshals í
Danmörku.
8- Að starfsmenn Tæknideildar Fiskifélagsins
haldi áfram með og auki upplýsingamiðlun á
tækninýjungum sjávarútvegsins, með heim-
sóknum í skóla, dreifingu á sérprentunum úr
Ægi og útvegun á myndböndum með fræðslu-
efni fyrir skip, skóla og helstu staði sjávarút-
vegsins.
9. Fiskiþing þakkar starfsmanni Fræðsludeildar
vel unnin störf og greinargóða skýrslu. Hvetur
þingið stjórn Fiskifélagsins til að beita öllum
ráðum við fræðsluyfirvöld, að undirstöðuat-
vinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegurinn,
verði ekki lengur hjá settur, heldur fái hann
hliðstæðan sess og aðrar atvinnugreinar í fjöl-
brautarskólum landsins.
41. Fiskiþing samþykkir að beina þeim ein-
dregnu tilmælum til ríkisvaldsins, að viðskipta-
bönkum sjávarútvegsins verði tryggður aðgangur
að nægilegu fé til að unnt sé að aðlaga rekstur
sjávarútvegsins að gjörbreyttum markaðsaðstæð-
um og aflatakmörkunum.
Aðlögunartími að þessum breyttu aðstæðum sé
minnst 2 ár.
Fréttatilkynning
Um stjórnun þorskveiða árið 1983
A fundum, sem sjávarútvegsráðuneytið hefur haldið með hagsmunaaðiljum í sjávarútvegi nú í haust og
vetur hefur samkomulag náðst um takmarkanir á þorskveiðum árið 1983.
Verður hér á eftir gerð grein fyrir helstu atriðum þorskveiða á næsta ári.
I- Almennt.
'• Heildarþorskaflinn verði 370 þús. lestir. Auknar
verði rannsóknir á ástandi þorskstofnsins og heild-
armagnið endurskoðað með tilliti til niðurstöðu
þeirra rannsókna.
2. Heildarþorskafli skiptist þannig: 185 þús. lestir til
báta og 185 þús. lestir til togara.
3. Togaraafli telst afli, sem veiðist af skipum, sem
falla undir ,,skrapdagakerfið“.
4- Árinu skipt í þrjú fjögurra mánaða viðmiðunar-
tímabíl.
5. Togveiðar loðnuskipa falla undir „skrapdagakerf-
ið“, en netaveiðar þeirra verði ekki takmarkaðar
við ákveðinn þorskkvóta.
II. Bátaflotinn.
'• Þorskveiðar í net eru bannaðar 1.—15. janúar.
Heimilt verður að stunda ufsa- og ýsuveiðar á sama
tíma, enda fari hlutur þorsks ekki yfir 20% af afla
veiðiferðar.
2.
3.
4.
5.
6.
Allar þorskveiðar verða bannaðar um páska eins og
undanfarin ár. Lengd banns verður ákveðin með
hliðsjón af aflamagni því, sem á land verður komið
um miðjan mars. Allar netaveiðar bannaðar í
páskatoppi.
Stöðvun netavertíðar ákveðin með hliðsjón af afla,
sem kominn verður á land um miðjan apríl. Stöðv-
un vertíðar tekur aðeins til báta fyrir Suður- og
Vesturlandi á svæðinu frá Eystra-Horni að Horni.
Þorskveiðar togbáta eru bannaðar 1.—7. maí.
Þorskveiðar í net eru bannaðar 1. júlí—15. ágúst.
Þorskveiðar eru bannaðar 24. júlí—2. ágúst. Bann-
ið taki ekki til línu- og færabáta, sem eru 12 lestir og
minni.
7. Þorskveiðar eru bannaðar 20.—31. desember. Á
þeim tíma allar netaveiðar bannaðar.
8. Að þorskveiðar séu bannaðar merkir að hlutur
þorsks í afla veiðiferðar má ekki fara yfir 15%.
9. Viðmiðunarmörkin verði:
Jan/vertíðarlok 135 þús. lestir
vertíðarlok/ág 30 þús. lestir
sept/des 20 þús. lestir
Samtals 185 þús. lestir
III. Togaraflotinn.
1. Viðmiðunarmörkin verði:
Jan/april 70 þús. lestir
maí/ágúst 60 þús. lestir
sept/des 55 þús. lestir
Samtals ................ 185 þús. lestir
2. Takmarkanir á þorskveiðum togara verði:
Jan/apríl: 30 dagar, þ.a. 10 dagar í jan/febr.
maí/ágúst: 45 dagar, þ.a. 25 dagar í júlí/ágúst
sept/des.: 35 dagar.
Samtals: 110 dagar
3. í þorskveiðibanni er leyfilegt hlutfall þorsks í afla
einstakra veiðiferða:
5% í 33 daga.
15% í 44 daga.
30% í 33 daga.
Framhald á bls. 41.
ÆGIR — 21