Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 41

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 41
tekið á Porcupine-bankanum og nágrenni. Með því að gera 6 fullfermistúra af kolmunnaflökum á ári og fá 20.000 tonna loðnukvóta á hausti og veiða upp í hann, er hugsanlega kominn rekstrar- grundvöllur fyrir ,,Eldborgu“. Lagt upp í aðra veiðiferð ,,Eldborg“ lagði upp í sína aðra veiðiferð þann 6. janúar s.l. og er ekki að efa að margir verða til að fylgjast grannt með hvernig þessi nýi veiðiskap- ur muni þróast fyrir útgerð og áhöfn. Hvernig kolmunninn muni haga sér á þessu ári, á eftir að koma i ljós, en fyrri hluta s.l. árs var mokveiði meðfram öllum kantinum norðvestur af Skotlandi, utan við bresku línuna. Aftur á móti hefur kol- munninn haldið sig miklu sunnar í haust en haustið 1981, þegar hann veiddist aðallega norður af Fær- eyjum. Hvað markaðsmálum þessarar nýju fiskafurðar Tveir af stærri gerðinni. áhrærir, þá er þar enn margt óráðið. Sem stendur eru aðalkaupendur kolmunnaafurða tvö fyrirtæki í Bretlandi, Ross og Birds-Eye, en þessi fyrirtæki eru jafnframt einhver þau stærstu í sjávarvöruvið- skiptum þar í landi. Þar sem þessi afurð er svo til alveg nýtilkomin er markaðurinn mjög viðkvæmur og tvímælalaust varhugavert að senda mörg skip til þessara veiða í náinni framtíð, nema að mjög vel athuguðu máli. Fyrirtækin sem að framan greinir, þurfa í mesta lagi um 1.000 tonn af kolmunna- afurðum á mánuði um þessar mundir, en mestallur kolmunninn fer á markað í Bretlandi. Erfitt hefur reynst fram til þessa að koma kolmunnanum inn á fiskmarkaðina í Bandaríkjunum og eru ekki taldar miklar líkur til að hann seljist þar í verulegu magni í náinni framtið. Þeir sem nú stunda þennan veiðiskap, telja að ef mörgum skipum verði beint í veiðar á kolmunna til manneldis, þá sé öruggt verðfall á honum fram- undan. Nær allur kolmunni fer á neytendamark- aðinn í formi marnings, utan óverulegs magns sem unnið er í fiskiðjuveri í Færeyjum, þar sem flökin eru handsnyrt, en úr flökunarvélunum koma kol- munnaflökin með nokkuð af beinum og stundum roði, mismikið, og eru þau siðan blokkfryst í 20 kg öskjur. Þegar varan kemur til kaupendanna eru öskjur þessar þýddar upp og öllu dembt í marn- ingsvélar, en 2% afföll verða á hráefninu hjá verk- smiðjunni sem vinnur i marninginn. Hingað til hafa kolmunnaveiðar til manneldis verið stundaðar af örfáum skipum, að frátöldum verksmiðjutogurum Sovétríkjanna. Upphaflega hófu þessar veiðar tveir verksmiðjutogarar frá Frakklandi og hafa þeir af og til gert túra á kol- munna, en jafnframt verið á öðrum veiðum inn á milli. Síðan hóf ,,Giljanesið“ frá Færeyjum, sem einnig er stór verksmiðjutogari, þessar veiðar og nú í haust hafa svo bæst við þrjú skip sem öll voru áður nótaveiðiskip af stærri gerðinni, þau eru auk ,,Eldborgar“, sem er 937 brl. að stærð, „Gullfinn- ur“, Færeyjum, ex. ,,Siljö“ Noregi, 1.600 brl., en hann veiðir fyrir fiskiðjuverið ,,Bakkafrost“ í Glyvrum (sjá ,,Reyting“ á bls. 22) og Meridian, Noregi ex. St. Loman, Grimsby, 1.200 brl. að stærð. Á þessari upptalningu sést að það eru engir smádasar sem þessar veiðar stunda. Innan skamms munu Færeyingar hefja útgerð á nýju sérhönnuðu kolmunnaveiðiskipi. B.H. ÆGIR — 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.