Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 34

Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 34
Siglingamálastofnuri ríkisins hefur nýlega endurútgefið „Lækningabók handa sjómönnum“ og i inngangi að bókinn skrifar Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri eftirfarandi: „Nokkuð er nú umliðið síðan Lækningabók handa sjómönnum var uppseld. Var ætlunin að gefa út nýja lækn- ingabók fyrir sjófar- endur fljótlega, en tafir hafa orðið á útgáfunni bæði vegna fjárhags- örðugleika Siglinga- málastofnunar ríkisins og svo efnislega vegna þess, að greinilegt var að endurskoða þurfti texta bókarinnar vegna þróunar í læknisfræði og vegna þess, að samtímis var nauðsynlegt að endurskoða reglugerðina um lyf og læknisáhöld í íslenskum skipum. Um faglegu atriðin leitaði siglingamála- stjóri því eftir aðstoð landlæknis bæði um endur- skoðun lækningahandbókarinnar og reglugerðar- innar. Landlæknir hefur nú góðfúslega endur- skoðað læknisfræðilegu atriðin í bókinni, og eru honum og hans aðstoðarmönnum hér með færðar bestu þakkir fyrir. í fyrri lækningabók var kafli um aðbúnað í skip- um og um vistarverur áhafna o.fl. Þessum atriðum eru nú öllum gerð verulega betri skil í sérstökum reglum, sem settar hafa verið samkvæmt lögum um eftirlit með skipum. Óþarft þótti að endurtaka efni þeirra reglna í lækningabók, og var því þess vegna sleppt úr. Þeir, sem kynnast vilja þeim atriðum, er því bent á sérprentanir þessara reglna, sem Siglingamálastofnun ríkisins hefur gefið út. Þess er vænst, að þessi nýja útgáfa lækningabókar fyrir sjófarendur, megi verða gagnleg leiðbeining varðandi meðhöndlun sjúkdóma og slysa um borð í skipum. Þegar um vafaatriði er að ræða, er þó rétt að hafa samband við lækni í landi um talstöð og leita ráða.“ Laxeldi Norðmanna fer ört vaxandi frá ári til árs. í fyrra var heildarútflutningur þeirra á laxi um 7.000 tonn, en í ár er gert ráð fyrir að þeir flytji út um 10.000 tonn að verðmæti um 1 milljarð ísl. kr. Til samaburðar má geta þess, að heildaraflaverð- mæti alls íslenska fiskiflotans var tæpar 2,7 mill- jarðar kr. á s.l. ári og þann 30. okt. sl. var það orð- ið mjög svipað í krónutölu frá áramótum. Á undanförnum árum hafa Norðmenn haft nokkrar áhyggjur af því hvernig markaðurinn fyrir rækt- aðan lax myndi þróast í framtíðinni, en fram til þessa hefur hann nær eingöngu verið seldur í Ev- rópu. Af þessum sökum hafa stjórnvöld í Noregi reynt að hafa hemil á fjölgun eldisstöðva með ströngum leyfisveitingum. Þessar áhyggjur hafa sem betur fer ekki átt við rök að styðjast, þar sem eftirspurn hefur farið vaxandi á hefðbundnum mörkuðum, og nú í seinni tíð hafa menn byrjað að líta hýru auga til Bandarikjanna þar sem útlit er fyrir að risamarkaður muni vera fyrir lax og er hann nú þegar fluttur í nokkru mæli þangað í flug- vélum. Fyrstu dagana í nóvember hóf fiskiðjuverið ,,Bakkafrost“ á Glyvrum framleiðslu á flökum og marningi úr kolmunna. Nokkrar tilraunir hafa áður verið gerðar í smáum stíl í Færeyjum til að framleiða í landi afurðir úr kolmunna til mann- eldis, en nú á að láta reyna á það fyrir alvöru hvort þessi framleiðsla sé hagkvæm og framkvæmanleg. Hingað til hefur framleiðsla á kolmunnaafurðum til manneldis eingöngu farið fram um borð í togar- anum ,,Giljanes“ Ætlunin er að eitt skip, ,,Gullfinnur“, sjái fisk- iðjuverinu fyrir hráefni og gangi allt samkvæmt áætlun þá vonast menn til að skipið komi til með að landa sem næst daglega, þar sem stutt er á SÉRRIT SIGUNGAMÁLA- STOFNUNAR RlKISINS 2 LÆKNINGABÓK fyrir sjófarendur 22 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.