Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 60
Fyrirkomulagsteikning af Patreki BA 64.
Á niðurfærslugír eru tvö aflúttök, 300 hö við
1500 sn/mín hvort. Við hvort úttak tengist einn
riðstraumsrafall frá Newage Stamford af gerð MC
434 B, 132 KW (165 KVA), 3x220 V, 50 Hz.
í vélarúmi eru tvær hjálparvélasamstæður, önn-
ur s.b,- og hin b.b.-megin, og gegnir minni sam-
stæðan hlutverki hafnarljósavélar.
Hjálparvél s.b.: MAN, gerð D2566, sex strokka
fjórgengisvél með forþjöppu, 200 hö við 1500
sn/mín. Vélin knýr beintengdan riðstraumsrafal
frá DEL af gerð GA 6.645, 136 KW (170 KVA),
3x220 V, 50 Hz.
Hjálparvél b.b.: Samofa, gerð S4E, fjögurra
strokka fjórgengisvél, 31 ha við 1500 sn/mín. Vél-
in knýr beintengdan riðstraumsrafal frá Newage
Stamford af gerð MC 234B, 24 KW (30 KVA),
3x220 V, 50 Hz.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Frydenbo,
gerð HS 20, hámarkssnúningsvægi 4000 kpm. Stýris-
vélin tengist Becker-stýri af gerð S-A 1350/165 F2.
48 — ÆGIR