Ægir - 01.01.1983, Qupperneq 22
voru verulegar bætur til loðnuskipa, þar sem
veiðar voru stöðvaðar áður en veiðst hafði upp í
fyrirfram ákveðinn aflakvóta. Þessi veiðistöðvun
kom mjög misjafnlega niður á einstökum skipum.
Deila má um það fyrirkomulag, sem notað var
við útreikninga þessarra bóta. Hinsvegar var að
minu mati sjóðurinn bótaskyldur i þessu tilfelli,
sbr. 2. gr. laga um sjóðinn, þar sem er að finna
ákvæði um hlutverk hans.
Á síðasta Alþingi voru sett lög um aflatryggingu
grásleppuveiðibáta og útflutningsgjald af grá-
sleppuafurðum. Þótt frumvarp að lögum þaraðlút-
andi hafi tekið nokkrum breytingum í meðförum á
Alþingi — einkum vegna samhljóða ábendinga
stjórnar Fiskifélagsins og stjórnar Aflatrygginga-
sjóðs, er langt frá því að allir annmarkar hafi verið
numdir á brott, enda er þegar farið að huga að
breytingum á þessum nýsettu lögum.
Eins og ráða má af yfirliti um stöðu hinna ýmsu
deilda sjóðsins, hefur verið um greiðsluhalla að
ræða hjá öllum deildum hans á árinu. Mestur er
hallinn hjá Verðjöfnunardeild. Þessum halla hefur
verið mætt með lánum úr hinni almennu deild.
Tæknideild.
Þar sem fyrir liggur ítarleg skýrsla um starfsemi
deildarinnar, auk þess sem einn starfsmanna henn-
ar mun gera þinginu nánari grein fyrir ýmsum
verkefnum, get ég verið stuttorður um þetta efni.
Af hefðbundnum verkefnum má nefna störf fyrir
Fiskveiðasjóð íslands. Voru alls afgreidd 26 mál
fyrir sjóðinn, þaraf voru átta umsagnir vegna ný-
smíða og kaupa á fiskiskipum, ellefu umsagnir
voru samdar vegna breytinga á skipum og tvær
álitsgerðir skrifaðar samkvæmt sérstakri ósk
stjórnar sjóðsins.
Skýrsla um athugun á reynslu við svartolíu-
brennslu kom út á árinu. Gerð var nokkur grein
fyrir niðurstöðum á siðasta Fiskiþingi. Áfram var
haldið kynningar- og fræðslufundum í Vélskóla ís-
lands og Stýrimannaskólanum.
Eitt veigamesta verkefni Tæknideildar á liðnu
starfsári var vinnuframlag í sambandi við norrænt
rannsóknarverkefni um orkusparnað á fiskveiðum,
svonefnt Nordforsk verkefni. Þar sem um merki-
legt verkefni er að ræða vil ég hvetja þingfulltrúa
til að kynna sér vandlega skýrslu Tæknideildar í
þessu efni.
Góðir þingfulltrúar. Komið er nú að lokum
skýrslu minnar um starfsemi Fiskifélags íslands á
liðnu starfsári. Ég leyfi mér að færa samstjórnar-
mönnum mínum þakkir fyrir gott samstarf. Þá vil
ég þakka starfsfólki félagsins og Fiskifélagsmönn-
um um land allt fyrir vel unnin störf á árinu.
10 — ÆGIR