Ægir - 01.07.1983, Blaðsíða 26
Hjá Iceland Review er nú komið út nýtt hefti af
árbók sjávarútvegsins á íslandi. Bókin er á ensku og
í henni er fjallað um allt það helsta sem varðar fisk-
veiðar, fiskvinnslu og markaðsmál á árinu 1982. Þar
að auki er í bókinni ýmiskonar fróðleikur um
íslenskan sjávarútveg almennt.
Af efni bókarinnar má nefna yfirlitsgreinar eftir
fjölmarga framámenn og sérfræðinga á hinum ýmsu
sviðum sjávarútvegsins, - töflur yfir afla, vinnslu og
útflutning, - lista yfir opinberar stofnanir og fyrirtæki
á íslandi, sem með einum eða öðrum hætti tengjast
sjávarútveginum, - söluskrifstofur erlendis og þannig
mætti lengi telja. Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sem gegndi embætti sjávarútvegs-
ráðherra þegar bókin fór í prentun, ritar inngang að
bókinni.
Þetta er í þriðja sinn sem Fisheries Yearbook
kemur út og telja útgefendur nú fyllilega komið í ljós
að þörf er fyrir rit af þessu tagi. Lesendur ritsins eru
einkum í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, en
einnig hafa borist pantanir frá fjarlægari löndum svo
sem Japan og Suður-Afríku. Þá er og mikið um að
íslensk fyrirtæki og stofnanir, sem tengjast sjávar-
útvegi og útflutningi, sendi erlendum viðskiptavinum
sínum bókina.
Fisheries Yearbook 1983 er 64 blaðsíður að stærð
og prýdd fjölda mynda, kostar krónur 240.00 að við-
bættum söluskatti. Ritstjóri er sem fyrr Haraldur J.
Hamar.
í
fréttabréfi frá Siglingamálastofnun ríkisins er
vakin athygli á að nýjar og breyttar alþjóðasigling3'
reglur tóku gildi þann 1. júní 1983, ogþáféllu úr gil^1
eldri reglur frá 15. júlí 1977.
Reglur þessar voru birtar í Stjórnartíðindum C-
deild, sem út komu 31. maí 1983. Siglingamálast-
ofnun ríkisins hefur látið sérprenta reglur þessar til
notkunar fyrir íslenska sjófarendur.
í hinni árlegu skýrslu FAO um fiskveiðar þjóða
heims fyrir árið 1981 kemur fram að heimsfiskaflinn
hefur aukist um tæplega 2,4 milljónir tonna, eða sem
svarar 3,3% frá árinu á undan. Mest var veitt af saf'
dínu í heiminum, eða 7,9 (6,6) milljónir tonna. I öðru
sæti var Alaskaufsinn og veiddist af honum 4,2 (4.0)
milljónir tonna, í þriðja sæti varð loðnan 2,8 (2,6)
millj. tonna. í fjórða sæti Atlantshafsþorskurinn 2,-
(2,2) millj. tonna og í fimmta sæti var spánskur mak'
ríll 1,8 (2,3) millj. tonna. ísland færðist niður um tvö
sæti milli þessara ára, en hafði tvö árin þar á undan
skipað 13. sætið. Fyrir árið 1982 eru endanlegar afla"
tölur hér á landi 788.495 tonn og erum við þar vne
sennilega komnir niður fyrir Malasíu í aflamagni, en
fyrir 10 árum veiddi þessi þjóð aðeins rúmlega
350.000 tonn. Er þetta með miklum ólíkindum, Paí
sem fram til þessa hefur verið álitið að við ættuf1
aðgang að gjöfulustu fiskimiðum heims.
1981 1980
Afli Afli Röð
Pjóðir íonn Röð tonn
Japan . . 10.656.515 1 10.426.425 1
Sovétríkin .... . . 9.545.922 2 9.475.750 2
Kína . . 4.605.000 3 4.235.348 3
Bandaríkin . . . . . 3.767.425 4 3.634.526 4
Chile . . 3.393.399 5 2.816.706 5
Perú . . 2.750.505 6 2.750.625 6
Noregur . . 2.551.520 7 2.408.913 8
Indland . . 2.415.437 8 2.437.981 7
Suður-Kórea . . . . 2.365.990 9 2.091.134 9
Indónesía .... . . 1.862.720 10 1.840.555 11
Danmörk .... . . 1.813.916* 11 2.026.442 10
Filipseyjar .... . . 1.650.496 12 1.556.602 13
Thailand . . 1.650.000 13 1.792.948 12
Mexíkó . . 1.564.819 14 1.243.565 17
Norður-Kórea . . . 1.500.000* 15 1.400.000* 15
ísland . . 1.440.833 16 1.514.239 14
Kanada . . 1.362.190 17 1.334.023 16
Spánn . . 1.263.654 18 1.264.680 18
Víetnam . . 1.013.500* 19 1.013.500* 19
Brasilía 900.000* 20 850.000* 20
Allur heimurinn 74.760.400 x Áætlaðar aflatölur. 72.376.800
362 —ÆGIR