Ægir - 01.07.1983, Blaðsíða 56
NÝ FISKISKIP
Hafnarey SU110
Nýtt fiskiskip bœttist í fiskiskipastól landsmanna 10.
marz s.l., er skipasmíðastöðin Porgeir & Ellert h.f,
Akranesi, afhenti mls Hafnarey SU 110, sem er ný-
smíði stöðvarinnar nr. 36. Skip þetta er smíðað sem
skuttogari og er sérstaklega búið til togveiða, en einnig
ergert ráð fyrir búnaði til línu- og netaveiða. Þorgeir &
Ellert h.f. hefur á síðustu árum afhent skuttogarana
Júlíus Havsteen ÞH (1976), Sölva Bjarnason (1980)
og Sigurfara IISH (1981).
Skipið er hannað í samvinnu milli skipasmíða-
stöðvar Þorgeris & Ellerts h.f. og Slippstöðvarinnar
h.f. í framhaldi af „Samstarfsverkefni um hönnun og
raðsmíði fiskiskipa“, sem Félag dráttarbrauta og
skipasmiðja stóð fyrir á árunum 1980-81. Hafnarey
SUer fyrsta skipið sem afhent er í hinu svonefnda rað-
smíðaverkefni stœrstu stöðvanna.
Hafnarey SU er af svipaðri stœrð og fyrsti skut-
togarinn frá Þ & E, Júlíus Havsteen ÞH; mesta lengd
1.5 m minni, breiddin 10 cm og dýpt að efra þilfari 5
cm meiri, en gjörbreytt byggingarlag og fyrirkomulag
ofan efra þilfars, og má þar nefna langan hvalbak á
fremri hluta þilfars og togbraut með fjórum bobbinga-
rennum eftir miðju þilfari fram að stefni. í Hafnarey
SU er búnaður til brennslu á svartolíu.
Hafnarey SU erí eigu Hraðfrystihúss Breiðdœlinga
h.f, Breiðdalsvík. Skipstjóri á Hafnarey SU er
Guðmundur ísleifur Gíslason og 1. vélstjóri Kristján
Steingrímsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Pétur
Sigurðsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið
er tveggja þilfara fiskiskip með perustefni, gafllaga
skut, skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri
hluta efra þilfars og brú aftantil á hvalbaksþilfari, og
er búið til tog-, línu- og netaveiða.
Mesta lengd ........................ 35.28 m
Lengd milli lóðlína ................ 31.65 m
Breidd ............................. 8.10 m
Dýpt að efra þilfari ................ 6.25 m
Dýpt að neðra þilfari ............... 4.00 m *
Eiginþyngd ........................... 500 t
Særými (djúprista 3.95 m)............. 645 t
Burðargeta (djúprista 3.95 m...... 145 t
Lestarrými ........................... 220 m3
Brennsluolíugeymar (svartolía) ... 41 m3
Brennsluolíugeymar (gasolía) .... 43 m’
Daggeymar ............................ 6.2 m’
Ferskvatnsgeymar ...................... 16 m'
Ganghraði (reynslusigling) .......... 12.5 hn
Rúmlestatala ......................... 249 brl
Skipaskrárnúmer ..................... 1645
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, tal$
framan frá: Stafnhylki fyrir brennsluolíu; hágeyma
fyrir brennsluolíu ásamt keðjukössum; fiskilest með
botngeymum fyrir ferskvatn (framantil) og brennslu-
olíu (aftantil); vélarúm með síðugeymum (smuroha,
þrýstiolía, o.fl.); og aftast skutgeyma, daggeymarog
sethylki fremst, en brennsluolíugeymar þar fyrlf
aftan.
Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir brennsiu-
olíu og geymsla, en þar fyrir aftan íbúðir. Aftan við
íbúðir er vinnuþilfar með fiskmóttöku aftast og aftast
fyrir miðju er stýrisvélarrúm. B.b.-megin við fisk'
móttöku og stýrisvélarrúm er beitufrystir/neta-
geymsla og framar á vinnuþilfari er vélarreisn.
Fremst á efra þilfari, í hvalbak, er rými fyrir vindur,
en þar fyrir aftan koma þilfarshús meðfram báðum
síðum og nær b.b. húsið lengra aftur; b.b.-meg>n
íbúðir og vélarreisn, en s.b.-megin klefi fyrir loftræstl'
búnað og dælurými. Milli þilfarshúsa er gangur f>'r,r
bobbingarennur, opinnað aftan. Togþilfar skipsinser
aftan við þilfarshús og tengist áðurnefndum gangu
Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og grein'
ist í fjórar bobbingarennur, sem ná fram að stefn1-
þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og
tilbúnar til veiða. Yfir afturbrún skutrennu er tog'
gálgi, en yfir frambrún skutrennu bipodmastur. Tog'
gálgapallur tengist bipodmastri.
Hvalbaksþilfar er heilt frá stafni aftur að miðju.elt
þar greinist það í tvennt og liggur meðfram báðu111
síðum aftur á móts við togvindur, aftarlega á tog
392 — ÆGIR