Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1983, Page 56

Ægir - 01.07.1983, Page 56
NÝ FISKISKIP Hafnarey SU110 Nýtt fiskiskip bœttist í fiskiskipastól landsmanna 10. marz s.l., er skipasmíðastöðin Porgeir & Ellert h.f, Akranesi, afhenti mls Hafnarey SU 110, sem er ný- smíði stöðvarinnar nr. 36. Skip þetta er smíðað sem skuttogari og er sérstaklega búið til togveiða, en einnig ergert ráð fyrir búnaði til línu- og netaveiða. Þorgeir & Ellert h.f. hefur á síðustu árum afhent skuttogarana Júlíus Havsteen ÞH (1976), Sölva Bjarnason (1980) og Sigurfara IISH (1981). Skipið er hannað í samvinnu milli skipasmíða- stöðvar Þorgeris & Ellerts h.f. og Slippstöðvarinnar h.f. í framhaldi af „Samstarfsverkefni um hönnun og raðsmíði fiskiskipa“, sem Félag dráttarbrauta og skipasmiðja stóð fyrir á árunum 1980-81. Hafnarey SUer fyrsta skipið sem afhent er í hinu svonefnda rað- smíðaverkefni stœrstu stöðvanna. Hafnarey SU er af svipaðri stœrð og fyrsti skut- togarinn frá Þ & E, Júlíus Havsteen ÞH; mesta lengd 1.5 m minni, breiddin 10 cm og dýpt að efra þilfari 5 cm meiri, en gjörbreytt byggingarlag og fyrirkomulag ofan efra þilfars, og má þar nefna langan hvalbak á fremri hluta þilfars og togbraut með fjórum bobbinga- rennum eftir miðju þilfari fram að stefni. í Hafnarey SU er búnaður til brennslu á svartolíu. Hafnarey SU erí eigu Hraðfrystihúss Breiðdœlinga h.f, Breiðdalsvík. Skipstjóri á Hafnarey SU er Guðmundur ísleifur Gíslason og 1. vélstjóri Kristján Steingrímsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Pétur Sigurðsson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið er tveggja þilfara fiskiskip með perustefni, gafllaga skut, skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri hluta efra þilfars og brú aftantil á hvalbaksþilfari, og er búið til tog-, línu- og netaveiða. Mesta lengd ........................ 35.28 m Lengd milli lóðlína ................ 31.65 m Breidd ............................. 8.10 m Dýpt að efra þilfari ................ 6.25 m Dýpt að neðra þilfari ............... 4.00 m * Eiginþyngd ........................... 500 t Særými (djúprista 3.95 m)............. 645 t Burðargeta (djúprista 3.95 m...... 145 t Lestarrými ........................... 220 m3 Brennsluolíugeymar (svartolía) ... 41 m3 Brennsluolíugeymar (gasolía) .... 43 m’ Daggeymar ............................ 6.2 m’ Ferskvatnsgeymar ...................... 16 m' Ganghraði (reynslusigling) .......... 12.5 hn Rúmlestatala ......................... 249 brl Skipaskrárnúmer ..................... 1645 Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, tal$ framan frá: Stafnhylki fyrir brennsluolíu; hágeyma fyrir brennsluolíu ásamt keðjukössum; fiskilest með botngeymum fyrir ferskvatn (framantil) og brennslu- olíu (aftantil); vélarúm með síðugeymum (smuroha, þrýstiolía, o.fl.); og aftast skutgeyma, daggeymarog sethylki fremst, en brennsluolíugeymar þar fyrlf aftan. Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir brennsiu- olíu og geymsla, en þar fyrir aftan íbúðir. Aftan við íbúðir er vinnuþilfar með fiskmóttöku aftast og aftast fyrir miðju er stýrisvélarrúm. B.b.-megin við fisk' móttöku og stýrisvélarrúm er beitufrystir/neta- geymsla og framar á vinnuþilfari er vélarreisn. Fremst á efra þilfari, í hvalbak, er rými fyrir vindur, en þar fyrir aftan koma þilfarshús meðfram báðum síðum og nær b.b. húsið lengra aftur; b.b.-meg>n íbúðir og vélarreisn, en s.b.-megin klefi fyrir loftræstl' búnað og dælurými. Milli þilfarshúsa er gangur f>'r,r bobbingarennur, opinnað aftan. Togþilfar skipsinser aftan við þilfarshús og tengist áðurnefndum gangu Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og grein' ist í fjórar bobbingarennur, sem ná fram að stefn1- þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða. Yfir afturbrún skutrennu er tog' gálgi, en yfir frambrún skutrennu bipodmastur. Tog' gálgapallur tengist bipodmastri. Hvalbaksþilfar er heilt frá stafni aftur að miðju.elt þar greinist það í tvennt og liggur meðfram báðu111 síðum aftur á móts við togvindur, aftarlega á tog 392 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.