Ægir - 01.06.1985, Page 32
24. mars 1931 strandaði
franski togarinn Cap Fagnet á
svonefndri Hraunsfjöru vest-
an við Grindavík. Vel gekk að
koma boðum til slysavarnadeild-
arinnar nýstofnuðu og svo greið-
lega gekk hin fyrsta björgun með
fluglínutækjum á íslandi, að
innan þriggja stunda frá því boðin
bárust um strandið, voru allir
skipverjar komnir í land, 38 að
tölu. Aðeins örfáum mínútum
síðar lagðist skipið og eftir það
hefði orðið erfitt um björgun
mannanna.
Náttmyrkrið aftraði lítt björg-
unarstörfum en samdóma álit
manna er, að ef hin nýju tæki
hefðu ekki verið til staðar hefði
ekki þurft að spyrja að leikslok-
um.
Þetta fyrsta afrek Þorbjörns
varð upphaf á farsælum ferli
deildarinnar og til marks um það
má nefna, að engin deild innan
Slysavarnafélags íslands mun
hafa bjargað fleiri mannslífum en
Grindavíkurdeildin.
Skammt í næsta strand
Á miðnætti hins 10. apríl árið
1933 strandaði togarinn Skúli
fógeti við Staðarhverfi í Grinda-
vík. Á skipinu voru 37 menn.
Strandsins varð ekki vart úr
Grindavík en loftskeytastöðin í
Reykjavík heyrði neyðarkall
skipsins. Þegar veðurfregnum var
útvarpað klukkan 1:45 um nótti^
hugkvæmdist loftskeytamanni a
láta fylgja frétt um strandið 0
heyrðist hún í Grindavík. Árang
urslaust hafði reynst að koma
þangað akandi vegna ófærðar
símasamband náðist ekki
þessum tíma sólarhrings.
Voru nú björgunarmenn ka
aðir saman í skyndi undir fory
Einars í Krosshúsum. Eftir nok r
stund fannst skipið og var j
fluglínutækjum komið fyr'r (
landi gegnt því. í öðru skoti to
að koma línu yfir í skipið og v°r,
þá á skammri stundu dregn|r
land þeir 24 menn sem eftir I'
af áhöfninni en þá hafði 13 reJ
útbyrðis. Þeir höfðu flestir
verið1
„Jón Baldvinsson" íbrimrótinu. - Ljósm.: SVFÍ.
324-ÆGIR