Ægir - 01.06.1985, Blaðsíða 48
miklu verðmætasköpun fiskveiða
og fiskvinnslu, hefur verið og er
undirstaða þess að hægt hefur
verið að halda uppi nútímaþjóð-
félagi hér á landi. Útflutningur
sjávarafla hefur alla þessa öld og
gerir enn, aflað þjóðarbúinu 70-
80% af gjaldeyristekjunum og
u.þ.b. 30% þjóðarframleiðsl-
unnar á beint eða óbeint rót sína
að rekja til útvegsins. Einungis
ca. 16% af erlendum skuldum
landsins er tilkomin vegna fjár-
festinga í sjávarútvegi. Hvar er
þá „glæpurinn"? Eitt er víst að
hans verður ekki leitað meðal
útgerðarmanna eða sjómanna.
Konungsbréf um fiskútveg
frá 1758
Nú á dögum fer jafnan um við-
skipti sjómanna og útvegsmanna
eftir kjarasamningum milli aðila.
En hvernigfæri ef kjarasamningar
væru ekki fyrir hendi? Þá yrði að
fara eftir gildandi lögum að sv°
miklu leyti sem þau ættu við 1
hverju tilviki. Vegna kjarasamf'
inganna eru mjög fáar lagasetm
ingar um þessi samskipti. Ein slíjj
lög er að finna í Konungsbréfi ti
stiftamtmanns og amtmanna fra
28. febrúar 1758.
Hér birtast nokkrar glefsur úr
þessu bréfi sem enn eru í gildi-
1. Allir formenn og hásetan
sem hafa látið sig leigJ3
eður festa til að róa nokkr-
um fiskibát um vertíðina-
skulu án forsómunar koma
í þann áskilda vissa tíma a
þann stað, hvar þeir aetla
að róa, og það allir í eimJ/
undir það straff að baeta
fyrir þann tíma sem þe'r
koma eigi.
2. Þegar formaðurinn hefur
snúið skipinu upp
fengið allar þær tilheyf'
andi tilfæringar, má eng'
inn af hásetum á nokkurn
hátt hindra hann frá þvíað
sækja sjóinn, hvenær sem
tækifæri gefst til þesS'
heldurskal sérhver skyldur
vera þegar hann er af f°r'
manninum kallaður að
láta sig án dvalar finna víð
bátinn og á honum róa.
3. Ef nokkur háseti er burtu
eina klukkustund, eftir það
honum hefur verið sagt tik
og hiniraðrireru komnirtil
bátsins, skal hann gjalda
þrjá fiska í sekt fyrir það/
nema hann geti sannað
lögleg forföll.
4. Enginn háseti rnáásjónum
á nokkurn hátt kúga f°r'
manninn til að fara til
lands, fyrr en hann skipar
það sjálfur.
5. Hver sá háseti er sýnir sig
hyskinn eða latan til að
fiska og lætur ekki að for-
340-ÆGIR