Ægir - 01.12.1985, Síða 10
og er stefnt að því að auka þessar
tilraunir. Sótt hefur verið um styrk
hjá Rannsóknaráði ríkisins vegna
þessara tilrauna og ef fé fæst
verður umfang þeirra aukið veru-
lega. Þess má geta að Norðmenn
leggja nú mikla áherslu á tilraunir
með lúðueldi, en hingaðtil hefur
ekki tekist að klekja lúðu-
hrognum í nokkrum mæli. Hér
við land er hinsvegar hægt að
veiða smálúðu í miklu magni, og
verður mjög fróðlegt að sjá
hvernig eldi hennar gengur. Það
er ekki fráleitt að fiskeldi geti
byggst á söfnun á ungfiski. Til
dæmis byggja Japanir gullstirtlu-
eldi sitt (yellow tail) þannig upp,
að villtur ungfiskur er veiddur í
miklu magni, og síðan alinn íflot-
kvíum í markaðsstærð.
Útgáfu og fræðslumál
Útgáfa Ægis og Sjómanna
Almanaksins var með sama sniði
og á liðnum árum en Sjómanna
Almanakið er nú sett í tölvu Fiski-
félagsins og sent þaðan beint í
prentsmiðju.
Skýrslur um útgerð og afla-
brögð svo og um rekstur fiski-
skipa flotans voru að venju gefin
út í bókarformi.
Kennslugögn í sjóvinnu I. hluti
voru endurútgefin á árinu, en
þessi gögn sem komu fyrst út
1977, hafa selst mjög vel.
Fyrir þinginu liggur ítarleg
skýrsla fræðsludeildar Fiskifé-
lagsins. Aðalstarfsemi hennar
hefur sem fyrr grundvallast á
almennri skipulagningu sjó-
vinnunáms og leiðbeiningum
með framkvæmd kennslunnar
víða um land. Á yfirstandandi
skólaári er sjóvinnukennsla í jafn-
mörgum skólum og s.l. áreða 37
skólum, og eru nemendur um
300.
í skýrslunni kemur meðal ann-
ars fram að Fræðsludeild F.í.
hefur ávallt lagt mikla áherslu á
reglulegt námskeiðahald fyrir
kennara. Enda grundvallast þessi
fræðslustarfsemi á hæfum og vel
menntuðum kennurum, nú sem
áður. Kennaranámskeið hafa
verið haldin sjö sinnum, sem
næst annað hvert ár. Áttunda
kennaranámskeiðið erfyrirhugað
næsta sumar 1986, og er ýmiss-
konar undirbúningur þegar
hafinn.
Fræðsludeild Fiskifélagsins,
stjórn félagsins og Fiskiþing hafa
í fjölda mörg ár barist fyrir því að
fá afnot af bát sem notaður yrði
sem kennslu- og kynningartæki
fyrir nemendur í sjóvinnudeild-
um grunnskólanna. Nú hafa
góðir hlutirgerst, s.l. vorundirrit-
aði fjármálaráðherra f.h. ríkis-
sjóðs smíða- og kaupsamning að
15 tonna bát, sem afhentur
verður nú um miðjan nóvember.
Þessi bátur sem smíðaður er á
Skagaströnd, verður að hluta not-
aður sem kennslu- og kynningar-
bátur fyrir sjóvinnunemendur um
allt land. Aðdragandinn var rúm-
lega tveggja ára barátta og sam-
stillt átak þriggja stofnana sem fá
þennan bát til afnota. Það eru
Fiskifélag íslands, Líffræði-
stofnun Háskólans og Hafrann-
sóknastofnunin, sem koma til
með að samnýta þennan bát.
Fjögurra manna rekstrarstjórn
hefur verið skipuð, og er formað-
ur frá sjávarútvegsráðuneytinu,
sem vann að framgangi málsins
ásamt fyrrgreindum stofnunum.
Ráðuneytið hefur farið þess á leit
við Fiskifélagið, að það sjái um
daglegan reksturbátsins, það mál
er ekki endanlega frágengið, en
allur rekstrarkostnaður er á sér-
stakri fjárveitingu.
Skipstjóri á bátinn hefur verið
ráðinn Hilmar Ólafsson, þraut-
reyndur sjómaður, stýrimaðurog
skipstjóri til margra ára, með
góða reynslu áflestum veiðarfær-
um.
Tilkoma þessa báts er öllum,
sem við sjóvinnufræðslu starfa,
mikið fagnaðarefni. Báturinn
mun gjörbreyta allri aðstöðu
þessarar námsgreinar, sem hefur
reynst mörgum unglingum gott
innlegg í undirbúningi undir lífið,
og öðrum hvati til meiri
menntunar síðar í stýrimanna-
skólanum.
- <
Á leið til hafnar
680-ÆGIR